Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Árni Sæberg skrifar 24. mars 2026 10:21 Leikskólinn Tröllaborgir er í Giljahverfinu á Akureyri. Akureyrarbær Akureyrarbær hefur ákveðið að fara yfir verklag sitt og innri ferla vegna máls sem kom til kasta lögreglu haustið 2024 og lýtur að meintri óviðeigandi framkomu starfsmanns á leikskólanum Tröllaborgum gagnvart barni í skólanum. Starfsmanni var vikið frá störfum í kjölfar þess að málið kom upp en foreldrar voru ekki látnir vita. Málið var á sínum tíma rannsakað af lögreglu en látið niður falla. Bærinn hefur óskað eftir því að rannsókn verði hafin á ný. Í fréttatilkynningu þess efnis frá Akureyrarbæ segir að ýmislegt bendi til þess að upplýsingaflæði hafi á þeim tíma ekki verið fullnægjandi. Markmið Akureyrarbæjar sé að tryggja með afgerandi hætti að sambærileg mál séu í framtíðinni meðhöndluð á eins skýran og faglegan hátt og unnt er. Ætlað kynferðisofbeldi gegn börnum á leikskólum hefur verið mikið í umræðunni undanfarið, allt frá því að starfsmaður Múlaborgar í Reykjavík var handtekinn grunaður um brot gegn fjölda barna. Hann sætir ákæru fyrir að nauðga einu barni. Síðan þá hafa fjögur mál sem varða meint kynferðisbrot starfsmanna leikskóla verið í fréttum Vilja að málið verði tekið aftur til skoðunar Í fréttatilkynningunni kemur fram að í gær hafi verið haldnir fundir með foreldrum og forráðamönnum barna í leikskólanum Tröllaborgum. Fundina hafi setið fulltrúar bæjarins, lögreglu, barnaverndar, stjórnendur skólans og sérfræðingur um hagnýtar leiðbeiningar til barna og foreldra ef upp kemur grunur um brot á barni. Tilgangur fundanna hafi verið að veita foreldrum upplýsingar um málið, auk þess að bjóða upp á ráðgjöf um hvernig ræða megi erfið mál við börn. Foreldrum hafi jafnframt verið leiðbeint um hvert þeir geti leitað hafi þeir áhyggjur af velferð barna sinna og hvernig koma megi á framfæri ábendingum til lögreglu. „Sveitarfélagið mun óska eftir því við lögreglu að málið verði tekið aftur til skoðunar reynist forsendur fyrir því, þannig að óvissa um atvik og niðurstöður verði sem minnst fyrir foreldra og starfsfólk.“ Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Biðst afsökunar Þá segir að Akureyrarbær biðjist afsökunar á því að foreldrar hafi ekki fengið upplýsingar fyrr. Á næstu vikum verði verklag bæjarins varðandi innri ferla og skipulag rýnt og endurbætt. Markmiðið sé að bæta upplýsingaflæði, verklag og viðbrögð, og skerpa á hlutverkaskiptingu í viðkvæmum málum. Hlutaðeigandi aðilar, þar á meðal starfsfólk og foreldrar, muni koma að þeirri vinnu auk þess sem leitað verði ráðgjafar sérfræðinga eftir þörfum. Einnig sé lögð rík áhersla á fræðslu til starfsfólks, foreldra og barna sem hluta af forvörnum gegn brotum á börnum. Öryggi og velferð allra barna skuli ávallt og undantekningarlaust vera í fyrirrúmi þegar þjónusta sveitarfélagsins er annars vegar og mikilvægt sé að foreldrar geti borið fullt traust til þeirra verkferla sem unnið er eftir. „Akureyrarbær vill taka það skýrt fram að hann ber fullt traust til starfsfólks leikskólans Tröllaborga hér eftir sem hingað til,“ segir í lok tilkynningar. Akureyri Ofbeldi gegn börnum Leikskólar Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira
Í fréttatilkynningu þess efnis frá Akureyrarbæ segir að ýmislegt bendi til þess að upplýsingaflæði hafi á þeim tíma ekki verið fullnægjandi. Markmið Akureyrarbæjar sé að tryggja með afgerandi hætti að sambærileg mál séu í framtíðinni meðhöndluð á eins skýran og faglegan hátt og unnt er. Ætlað kynferðisofbeldi gegn börnum á leikskólum hefur verið mikið í umræðunni undanfarið, allt frá því að starfsmaður Múlaborgar í Reykjavík var handtekinn grunaður um brot gegn fjölda barna. Hann sætir ákæru fyrir að nauðga einu barni. Síðan þá hafa fjögur mál sem varða meint kynferðisbrot starfsmanna leikskóla verið í fréttum Vilja að málið verði tekið aftur til skoðunar Í fréttatilkynningunni kemur fram að í gær hafi verið haldnir fundir með foreldrum og forráðamönnum barna í leikskólanum Tröllaborgum. Fundina hafi setið fulltrúar bæjarins, lögreglu, barnaverndar, stjórnendur skólans og sérfræðingur um hagnýtar leiðbeiningar til barna og foreldra ef upp kemur grunur um brot á barni. Tilgangur fundanna hafi verið að veita foreldrum upplýsingar um málið, auk þess að bjóða upp á ráðgjöf um hvernig ræða megi erfið mál við börn. Foreldrum hafi jafnframt verið leiðbeint um hvert þeir geti leitað hafi þeir áhyggjur af velferð barna sinna og hvernig koma megi á framfæri ábendingum til lögreglu. „Sveitarfélagið mun óska eftir því við lögreglu að málið verði tekið aftur til skoðunar reynist forsendur fyrir því, þannig að óvissa um atvik og niðurstöður verði sem minnst fyrir foreldra og starfsfólk.“ Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Biðst afsökunar Þá segir að Akureyrarbær biðjist afsökunar á því að foreldrar hafi ekki fengið upplýsingar fyrr. Á næstu vikum verði verklag bæjarins varðandi innri ferla og skipulag rýnt og endurbætt. Markmiðið sé að bæta upplýsingaflæði, verklag og viðbrögð, og skerpa á hlutverkaskiptingu í viðkvæmum málum. Hlutaðeigandi aðilar, þar á meðal starfsfólk og foreldrar, muni koma að þeirri vinnu auk þess sem leitað verði ráðgjafar sérfræðinga eftir þörfum. Einnig sé lögð rík áhersla á fræðslu til starfsfólks, foreldra og barna sem hluta af forvörnum gegn brotum á börnum. Öryggi og velferð allra barna skuli ávallt og undantekningarlaust vera í fyrirrúmi þegar þjónusta sveitarfélagsins er annars vegar og mikilvægt sé að foreldrar geti borið fullt traust til þeirra verkferla sem unnið er eftir. „Akureyrarbær vill taka það skýrt fram að hann ber fullt traust til starfsfólks leikskólans Tröllaborga hér eftir sem hingað til,“ segir í lok tilkynningar.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Akureyri Ofbeldi gegn börnum Leikskólar Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira