„Ekki mótaður af egói heldur af fólkinu og staðnum“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. mars 2026 07:00 Heimir Hallgrímsson var mættur brosandi á fyrstu æfingu írska landsliðsins eftir að liðið kom saman fyrir umspilið um sæti á HM. Getty/Stephen McCarthy Írar eru orðnir mjög spenntir fyrir komandi umspili um sæti á heimsmeistaramótinu í fótbolta sem fer fram seinna í sumar og eftir ævintýralegan endi á undankeppninni er óhætt að írska þjóðin sé forvitin um íslenska landsliðsþjálfara sinn.
Írar eru tveimur sigrum frá því að vera með á HM í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada og Heimir Hallgrímsson væri þá að fara með sitt annað landslið á HM eftir að hafa farið með íslenska landsliðið á HM í Rússlandi 2018. Írar mæta fyrst Tékkum í Prag og vinnist sá leikur verður hreinn úrslitaleikur á heimavelli á móti Dönum eða Norður-Makedóníu. Í boði er sæti í A-riðli HM þar sem eru líka Mexíkó, Suður-Kórea og Suður-Afríka. View this post on Instagram A post shared by Irish Independent (@independent.ie) Daniel McDonnell, fótboltafréttaritari Irish Independent, ferðaðist til Íslands og fór út í Vestmannaeyjar til að hitta fólkið sem mótaði líf Heimis löngu áður en hann hóf störf í alþjóðlegum fótbolta. Ræddi við bræður og vini Heimis Útkoman er heimildarmynd sem fékk nafnið: „Finding Heimir: An exclusive Irish Independent documentary“. „Í gegnum samtöl við bræður Heimis, besta vin hans úr æsku, fyrrverandi kokk liðsins sem nú er hluti af fjölskyldunni og heimamenn sem fylgdust með honum vaxa úr grasi sem ungur leikmaður yfir í að verða yfirvegaður þjálfari, kemur skýr mynd í ljós: samfélag, auðmýkt og umhyggja eru undirstaða þjálfaraheimspeki Heimis,“ segir í texta um myndina. Þar segir enn fremur: „Þetta er portrett af þjálfara sem er ekki mótaður af egói, heldur af fólkinu og staðnum sem gerðu hann að þeim sem hann er.“ Heimsóttir kaffiskúrinn fræga McDonnell fer í fótboltahöllina og heimsækir kaffiskúrinn sem Heimir barðist fyrir að fengi að standa áfram sem er sá sami og finna má oft Heimi í þau skipti sem hann er heima í Vestmannaeyjum. Þessa athyglisverðu heimildarmynd má sjá alla hér fyrir neðan. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=cqx8a_O_MrQ">watch on YouTube</a>
HM 2026 í fótbolta Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Mest lesið Kristján hafði betur gegn Fjallinu og er sterkasti maður Íslands Sport Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Enski boltinn Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Höfuðhöggin á ferlinum valdi vitglöpum Sport Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Dagskráin í dag: Mansfield og Messa á sunnudegi Sport Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Aston Villa hyggst fylla í götin Enski boltinn Fleiri fréttir Aðför að forsetanum segir FIFA í harðorðri yfirlýsingu Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Guðrún úr leik eftir tap fyrir Juventus Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Ensk landsliðskona vill sniðganga HM Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Afturelding á toppinn eftir stórsigur og tap Fylkis Sjá meira