Körfubolti

Tæknivillan tekin til baka og Doncic sleppur við bann

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Luka Doncic sleppur við leikbann en tæknivillan sem Goga Bitadze fékk stendur.
Luka Doncic sleppur við leikbann en tæknivillan sem Goga Bitadze fékk stendur. Julio Aguilar/Getty Images

Luka Doncic verður ekki í leikbanni þegar Los Angeles Lakers mæta Detroit Pistons, toppliði vesturdeildar NBA, í nótt. Tæknivillan sem Doncic fékk á laugardag hefur verið dregin til baka.

Doncic fékk sína sextándu tæknivillu á tímabilinu fyrir orðaskipti við Goga Bitadze, framherja Orlando Magic. Þeir voru báðir aðvaraðir af dómaranum áður en flautan gall og þeir fengu tæknivillur.

Orðin voru látin falla á serbnesku og óvíst er hvað nákvæmlega var sagt en bandarískir miðlar segja þá hafa dregið fjölskyldur hvors annars inn í myndina.

Doncic svaraði fyrir sig eftir leik og sagðist bara hafa verið að verja heiður fjölskyldu sinnar en hann stendur þessa stundina í skilnaðardeilum.

Los Angeles Lakers ákváðu þá að áfrýja dómnum og eftir úrskurð aganefndar var tæknivillan sem var dæmd á Doncic tekin til baka.

Slóvenski framherjinn mun því ekki taka út leikbann þegar Los Angeles Lakers mæta Detroit Pistons í nótt.

„Augljóslega gert til að auka sjónvarpsáhorf“

Þó Lakers stuðningsmenn fagni þessari ákvörðun eru ekki allir á eitt sáttir með hana. NBA spjallþáttastjórnandinn Skip Bayless tjáði sig tæpitungulaust á Twitter og sagði þessa ákvörðun eingöngu tekna til að auka sjónvarpsáhorf á stórleikinn í kvöld.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×