Skammt stórra högga á milli Eiður Þór Árnason og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa 20. mars 2026 19:43 Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur, einnig þekktur sem Siggi Stormur, segir ekkert blíðviðri í kortunum. Sýn Gular veðurviðvaranir eru í gildi fyrir flesta landshluta fram til morguns og vegir um Holtavörðuheiði, Öxnadalsheiði og Steingrímsfjarðarheiði meðal þeirra sem eru lokaðir. Veðurfræðingur segir skammt stórra högga á milli og landsmenn þurfi að venjast vetrarríki á næstunni. „
Við erum eiginlega lent í lægðasúpu. Þær bíða í röðum eftir að komast til okkar lægðirnar. Þessi sem veldur þessu veðri, sem hefur gengið á með mjög dimmum éljum í dag, hún liggur fyrir vestan land og er á leiðinni norðaustur. Næsta lægð kemur upp að landinu annað kvöld og þá fer að hvessa á nýjan leik með snjókomu.“ Þetta segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur, einnig þekktur sem Siggi Stormur. Él muni láta sjá sjá sig fyrri hlutann á morgun og í kjölfarið komi næstu tvær lægðir á mánudag og fimmtudag. „Þannig það er útlit fyrir að það verði vetrarríki hjá okkur það sem eftir lifir af þessum mánuði. Það er bara einfaldlega þannig,“ sagði hann í kvöldfréttum Sýnar. Spáin geti þrátt fyrir allt enn tekið breytingum þar sem næstu lægðir eigi enn eftir að taka á sig mynd. Mjög vont veður í sumum landshlutum á morgun „Þessi lægð sem er í dag og þessi lægð sem kemur annað kvöld og aðra nótt, þær munu setja mark sitt á veðrið með mjög vondu veðri á Suðaustur- og Austurlandi og snjókomu, þar á meðal í Reykjavík á sunnudag. Þannig að snjórinn er kominn til að vera í bili í það minnsta,“ segir Sigurður. Næsta lægð muni hafa áhrif á mestallt landið. Austurland hafi sloppið einna best í dag en fái sinn skammt annað kvöld eða aðfaranótt sunnudags. „Á sunnudaginn þá verða þeir ekki í blíðu nema síður sé. En þá verður líka snjókoma hjá okkur flestum þannig að það verður éljagangur eða snjókoma. Allra syðst gæti rignt yfir ströndina og þá er ég að tala um Suðausturlandið þannig að það er vetrarríki í kortunum.“
Veður Tengdar fréttir Goðamót í uppnámi og útlit fyrir sama veður fram á nótt Um þrjátíu lið geta ekki sótt Goðamótið sem fram fer á Akureyri um helgina vegna óveðurs. Víðtækar veðurviðvaranir eru nú í gildi víðast hvar á landinu og verða til morguns og lokanir á vegum á Vesfjörðum og á Norðurlandi, veðurfræðingur segir útlit fyrir vont veður fram á nótt. 20. mars 2026 12:02 Öllu flugi dagsins aflýst Icelandair hefur aflýst öllu flugi sem var á áætlun dagsins, bæði innanlandsflugi og millilandaflugi. Öllu flugi annarra flugfélaga til og frá Keflavíkurflugvelli hefur sömuleiðis verið aflýst. 20. mars 2026 11:52 Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Sjá meira
Goðamót í uppnámi og útlit fyrir sama veður fram á nótt Um þrjátíu lið geta ekki sótt Goðamótið sem fram fer á Akureyri um helgina vegna óveðurs. Víðtækar veðurviðvaranir eru nú í gildi víðast hvar á landinu og verða til morguns og lokanir á vegum á Vesfjörðum og á Norðurlandi, veðurfræðingur segir útlit fyrir vont veður fram á nótt. 20. mars 2026 12:02
Öllu flugi dagsins aflýst Icelandair hefur aflýst öllu flugi sem var á áætlun dagsins, bæði innanlandsflugi og millilandaflugi. Öllu flugi annarra flugfélaga til og frá Keflavíkurflugvelli hefur sömuleiðis verið aflýst. 20. mars 2026 11:52