Körfubolti

LeBron James jafnaði leikjamet Robert Parish í NBA

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
LeBron James er á fimmtudagsaldri og langelsti leikmaðurinn í NBA-deildinni í dag.
LeBron James er á fimmtudagsaldri og langelsti leikmaðurinn í NBA-deildinni í dag. Getty/Rich Storry

LeBron James jafnaði við goðsögnina Robert Parish þegar hann spilaði sinn 1611. deildarleik í NBA aðfaranótt föstudags.

Það gerðist þegar LeBron James og Los Angeles Lakers unnu Miami Heat 134–126. Það þýðir að LeBron James hefur nú spilað jafn marga leiki og Robert Parish.

LeBron James getur slegið metið og orðið einn á toppnum ef hann spilar þegar Los Angeles Lakers heimsækir Orlando Magic seint á laugardagskvöldið.

Robert Lee Parish var 2,16 metra hár miðherji, kallaður „höfðinginn“ (e. the Chief), sem lék með fjórum liðum í NBA-deildinni frá 1976 til 1997. Á fjórtán ára ferli sínum með Boston Celtics myndaði Parish, ásamt framherjunum og goðsögnunum Larry Bird og Kevin McHale, eina bestu framlínu í sögu NBA en þeir unnu þrjá meistaratitla saman.

James bauð heldur ekki upp á neinn meðalleik því hann var með þrefalda tvennu á móti sínu gamla félagi.

James bauð upp á nítján stig, fimmtán fráköst og tíu stoðsendingar. Hann hitti úr átta af tólf skotum sínum í leiknum. Í leiknum á undan skoraði hann þrjátíu stig og hitti úr 13 af 14 skotum sínum.

„Ef einhver verðskuldar að slá járnkarlametið, þá myndi ég segja að það væri LeBron James,“ sagði Parish við ESPN. „Vegna þess að hann hugsar svo vel um sig. Nálgun hans á líkamsrækt og það sem hann lætur ofan í sig endurspeglar, eða speglar, hvernig mér leið varðandi mína líkamsrækt og það sem ég borðaði, hvernig ég hugsaði um mig. Og það er því vitnisburður um ekki aðeins mína langlífi, heldur einnig langlífi LeBrons,“ sagði Parish.

Parish sem setti metið 9. apríl 1996 þegar hann fór fram úr Kareem Abdul-Jabbar sem var með 1.560 leiki. Miðherjinn bætti við metið áður en hann hætti árið 1997. Parish gerði ráð fyrir að einhver myndi á endanum slá metið.

„Ó, nei, nei,“ sagði Parish þegar hann var spurður hvort hann hefði talið met sitt, sem stóð í næstum 30 ár, óbrjótanlegt. „Ég hélt að metið yrði slegið á endanum,“ sagði Parish.

Parish var með 3,7 stig og 2,1 frákast að meðaltali þegar hann var 43 ára á sínu síðasta tímabili með Chicago Bulls árin 1996–97. Eftir leikinn á fimmtudaginn var James með 21,3 stig, 6,9 stoðsendingar og 5,8 fráköst að meðaltali á þessu tímabili með Lakers.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×