Upp­gjörið KR - Njarð­vík 89-70 | KR vann toppslaginn gegn Njarð­vík í Vestur­bænum

Rebekka Rut Steingrímsdóttir spilaði vel þegar KR hafði betur gegn Njarðvík í kvöld. 
Rebekka Rut Steingrímsdóttir spilaði vel þegar KR hafði betur gegn Njarðvík í kvöld.  Vísir/Pawel

KR lagði Njarðvík að velli, 89-70, þegar liðin leiddu saman hesta sína í toppslag Bónus-deildar kvenna í körfubolta að Meistaravöllum í kvöld. Njarðvík var í toppsætinu fyrir leikinn sem var liður í næstsíðustu umferð deildarinnar.

Njarðvík hóf leikinn betur og var hænufeti framar fyrstu tvo leikhlutana en staðan var 40-36 gestunum í vi þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik. 

Það var hins vegar kraftmikið KR-lið sem mætti til leiks inn í þriðja leikhlut og snéri taflinu sér í vil. KR vann þann leikhluta 30-13 en þar var það orkumikil og sterk vörn heimakvenna, sóknarfráköst og góð skontýting sem varð til þess að þær náðu upp þægilegu forskoti. 

KR-liðið leit aldrei til baka og hleypti Njarðvík ekki að neinu ráði inn í  leikinn í fjórða leikhluta og niðurstaðan sannfærandi 19 stiga sigur KR sem getur þar af leiðandi tryggt sér deildarmeistaratitilinn þegar liðið etur kappi við Hauka í lokaumferð deildarkeppninnar. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira