Ragna verður forstjóri Fangelsismálastofnunar Lovísa Arnardóttir skrifar 20. mars 2026 12:44 Ragna hefur unnið í dómsmálaráðuneytinu frá árinu 2017. Aðsend Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að flytja Rögnu Bjarnadóttur, skrifstofustjóra í dómsmálaráðuneytinu, í embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar ríkisins frá og með 15. maí næstkomandi.
Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að það sé gert með vísan í heimild í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Birgir Jónasson hefur gegnt stöðunni frá því að Páll Winkel fór í leyfi árið 2024 en Birgir var áður lögreglustjóri á Norðurlandi vestra. Hann hefur verið í leyfi frá þeirri stöðu á meðan hann hefur gegnt stöðu fangelsismálastjóra. Páll var nýlega skipaður í embætti ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins. Í tilkynningu stjórnarráðsins kemur fram að Ragna hefur gegnt embætti skrifstofustjóra í dómsmálaráðuneytinu frá árinu 2017. Til ársins 2025 stýrði hún skrifstofu almanna- og réttaröryggis sem fór með umfangsmikla málaflokka á sviði réttarvörslu, svo sem fullnustu refsinga, löggæslu, ákæruvald, aðgerðir gegn brotastarfsemi sem og almannavarnir, landhelgisgæslu, landamæri og fleira. Frá árinu 2025 til dagsins í dag hafi hún svo stýrt skrifstofu alþjóðamála sem ber einkum ábyrgð á útlendingamálum, landamærum og aðgerðum gegn brotastarfsemi. „Í störfum sínum sem skrifstofustjóri hefur Ragna leitt vinnu við lagasetningu og stefnumótun á málefnasviðunum, stýrt fjölda hópa og nefnda og sinnt fjölbreyttu alþjóðasamstarfi svo dæmi séu tekin. Hún býr því yfir umfangsmikilli reynslu og þekkingu á þeim verkefnum sem Fangelsismálastofnun ber ábyrgð á,“ segir í tilkynningunni. Þar er jafnframt farið yfir bakgrunn Rögnu: Ragna er fædd árið 1975. Hún lauk cand.jur. prófi frá Háskóla Íslands árið 2006 og meistaragráðu með áherslu á réttarheimspeki og mannréttindi á sviði sakamála frá Oxford-háskóla árið 2009. Hún starfaði sem ákærandi á árunum 2006 til 2008 og 2009 til 2010, fyrst hjá embætti ríkissaksóknara og svo hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Á árunum 2011 til 2014 starfaði hún sem lögfræðingur hjá Mannréttindadómstóli Evrópu í Strassborg. Þá starfaði hún sem lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis frá árinu 2015 til 2016. Það ár hóf Ragna störf í dómsmálaráðuneytinu, þá innanríkisráðuneytinu, og starfaði sem lögfræðingur ráðuneytisins í mannréttindum til ársins 2017 þegar hún tók við skipun sem skrifstofustjóri eins og áður greinir.
Fangelsismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vistaskipti Stjórnsýsla Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Fleiri fréttir „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Þetta var rétt ákvörðun“ Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Litlar breytingar þrátt fyrir lagabreytinguna Sjá meira