Hittler mætir Zielenski í frönskum bæjarstjóraslag Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 19. mars 2026 16:42 Frambjóðendunum er hlátur ekki efst í huga og segja óskandi ef bærinn þeirra fengi athygli út á eitthvað annað en nöfnin þeirra. Facebook/Instagram Sveitarstjórnarkosningar í franska smáþorpinu Arcis-sur-Aube hafa vakið heimsathygli að undanförnu, fyrir þær sakir að frambjóðendurnir bera nöfn sem hljóma kunnuglega.
Sitjandi bæjarstjóri Arcis-sur-Aube og frambjóðandi til áframhaldandi setu heitir nefnilega Charles Hittler. Þá er annar tveggja mótframbjóðenda hans, Antoine Renault-Zielinski, iðulega kallaður Zielinski. „Þetta er algjör klikkun,“ sagði Hittler í samtali við BBC um þá athygli sem sveitarstjórnarkosningar hafa fengið, en í bænum búa tæplega þrjú þúsund manns. „Ég hef reglulega í gegnum ævina lent í því að fólk gantist með nafnið mitt. Stundum hefur fólk teiknað yfirvaraskegg á kosningaáróður frá mér,“ segir Hittler en honum er hlátur neðarlega í huga. „Ég hef séð greinar á netinu um að 37 prósent íbúa Arcis séu Hitler-menn. Konan mín er miður sín yfir þessu.“ Á frönskum vefmiðlum hefur mikið farið fyrir þessum líkindum nafna Hittlers við nasistaleiðtogann Adolf Hitler annars vegar og Zielinski og Volodímír Selenskí forsætisráðherra Úkraínu hins vegar. Hittler segir athyglina sem nöfnin ein hafa fengið í aðdraganda kosninganna um of. Aðspurður hvers vegna hann hafi ekki skipt um nafn segir Hittler frá föður sínum, sem var fangi í vinnubúðum nasista í Þýskalandi á stríðsárunum en snúið aftur heim. „Það sögðu honum allir að hann þyrfti að skipta um nafn en þetta var árið 1949. Stríðið var honum ferskt í minni en það var flókið mál og hefði kostað hann mikla peninga að skipta þannig að hann sleppti því,“ segir Hittler. Ættarnafnið sé þó á undanhaldi og flestir afkomendur föður hans velji frekar að bera annað nafn. Renault-Zielinski, sem er af pólskum uppruna, segist hafa rekið upp stór augu þegar hann sá hve mikla athygli nöfn frambjóðendanna vöktu á X í vikunni. „Ég skil af hverju sumum finnst þetta fyndið. Persónulega finnst mér það ekki en þetta truflar mig svo sem ekki. Það væri óskandi ef fólk væri að tala um Arcis af öðrum ástæðum,“ segir Zielinski við BBC.
Frakkland Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira