Golf

Leitaði í uppskriftabók mömmu fyrir Masters

Sindri Sverrisson skrifar
Rory McIlroy er búinn að setja saman girnilegan matseðil fyrir Masters en þar standa ostafylltu beikondöðlurnar frá mömmu hans upp úr.
Rory McIlroy er búinn að setja saman girnilegan matseðil fyrir Masters en þar standa ostafylltu beikondöðlurnar frá mömmu hans upp úr. Samsett/Getty

Eitt af því sem Rory McIlroy græðir á því að hafa unnið Masters-mótið virta í golfi í fyrra er það að hann fær að ráða matseðlinum í sérstökum hátíðarkvöldverði í aðdraganda mótsins.

Norður-írski kylfingurinn er núna búinn að ákveða hvaða mat verður boðið upp á í næsta mánuði en Masters fer fram 9.-12. apríl, á Augusta-vellinum að vanda. Í hátíðarkvöldverðinn, sem er á þriðjudagskvöldinu fyrir mótið, mæta aðrir fyrri sigurvegarar mótsins og fá að gæða sér á því sem McIlroy valdi. Í þeim hópi eru menn á borð við Tiger Woods, Phil Mickelson og Scottie Scheffler.

McIlroy ákvað að sjálfsögðu að leita í uppskriftabók móður sinnar og valdi einn af hennar bestu réttum sem einn af fjórum forréttum.

Skógarhjartarborgarar í boði

„Mamma gerir svo rosalega góðan rétt þar sem döðlur eru fylltar með geitaosti og þær svo vafðar inn í beikon, svo ég setti þann rétt á forréttalistann. Þökkum Rosie fyrir þennan,“ sagði McIlroy samkvæmt BBC.

Hann borðaði mikið af skógarhjartarkjöti fyrir Masters í fyrra og ákvað að hann vildi hafa þannig kjöt á matseðlinum en þó ekki sem aðalrétt. Það verða því litlir skógarhjartarhamborgarar á meðal forréttanna, sem og djúpsteiktar rækjur og flatbrauð með ferskjum og ricotta-osti.

McIlroy fannst mikilvægt að bjóða upp á írska kartöflumús með aðalréttinum, svokallað Irish Champ.Getty/Krissy Krummenacker

McIlroy býður svo upp á írskan kartöflumúsarrétt með aðalrétti kvöldsins sem er annars nokkuð hefðbundinn, þar sem valið stendur á milli wagyu-nautalundar og pönnusteikts lax.

Í eftirrétt er svo blaut svampkaka með heitri karamellusósu sem McIlroy segir að muni slá í gegn.

Hvítvínið sem hann valdi er Domaine Leflaive Batard Montrachet frá árinu 2022 og rauðvínið er frá Bordeaux og heitir Chateau Lafite Rothschild frá árinu 1990.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×