Deilan leyst og spilað í Boston Valur Páll Eiríksson skrifar 19. mars 2026 11:03 Robert Kraft er eigandi vallarins og fyrirtæki hans hafði samið við FIFA og borgaryfirvöld í Boston um að halda leiki þar. Völlurinn er hins vegar staðsettur í smábænum Foxborough og bæjaryfirvöld þar alls utan samningsmála þangað til þeim barst reikningur upp á milljarð. Chip Somodevilla/Getty Images Náðst hefur niðurstaða milli deilandi aðila sem koma að leikjum á HM karla í fótbolta í Foxborough í nánd við Boston. Síðustu vikur hefur óvissa ríkt um leiki þar á bæ vegna deilna um greiðslur.
Bæjarstjórn Foxborough hafði sagst reiðubúin að beita neitunarvaldi gagnvart leikjunum en henni var haldið utan samninga um leikina milli FIFA, Kraft Sports & Entertainment (eigandi vallarins) og borgaryfirvalda í Boston. Leikirnir fara fram á Gillette-vellinum, heimavelli New England Patriots og New England Revolution, sem er í eigu Kraft Sport & Entertainment (KSE) sem leiddur er af milljarðamæringnum Robert Kraft, eiganda Patriots. Sem eigandi vallarins veitti KSE í raun FIFA leyfi fyrir því að leikirnir færu þar fram. FIFA samdi svo við borgaryfirvöld í Boston um skipulagningu á viðburðum í kringum leikina. Samningar náðust því milli Boston, KSE og FIFA um að halda leikina. Gillette-völlurinn er hins vegar staðsettur rétt fyrir utan Boston í bæjarfélaginu Foxborough. Deilur hafa staðið um kostnað varðandi öryggisgæslu og hefur deilan strandað á því að KSE og Boston hafa gert kröfu um að bæjaryfirvöld í Foxborough leggi út 7,8 milljónir dala, tæplega einn milljarður króna, fyrir öryggisgæslu í kringum leikina. Bæjaryfirvöld í Foxborough stóðu hins vegar alfarið utan samninga sem gerðir voru milli Boston, KSE og FIFA og útlagður kostnaður upp á tæplega átta milljónir dala samsvaraði tíu prósentum árlegrar veltu bæjaryfirvalda. KSE og Boston lofuðu því að kostnaðurinn yrði endurgreiddur en óljóst var hvenær og hvernig féð yrði endurgreitt bæjaryfirvöldum í Foxborough. Eftir stíf fundarhöld í vikunni tókst að binda enda á nokkurra vikna langar deilur og óvissu. Yfirlýsing var gefin út í gær þar sem fram kom að aðilarnir þrír hefðu komist að samkomulagi sem „gerir Foxborough kleift að veita leyfi fyrir viðburðunum“. Boston muni leggja út fyrir öllum þeim kostnaði tengdum öryggismálum með stuðningi KSE og Foxborough „beri engan kostnað eða fjárhagslega byrði vegna HM í fótbolta.“ Leikirnir fara því fram vandræðalaust en alls eru sjö leikir á dagskrá á Gillette-vellinum, þar á meðal leikir í bæði 32-liða úrslitum og átta liða úrslitum mótsins.
HM 2026 í fótbolta Bandaríkin Mest lesið Kristján hafði betur gegn Fjallinu og er sterkasti maður Íslands Sport Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Enski boltinn Höfuðhöggin á ferlinum valdi heilabilun Sport Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Aðför að forsetanum segir FIFA í harðorðri yfirlýsingu Fótbolti Dagskráin í dag: Mansfield og Messa á sunnudegi Sport Aston Villa hyggst fylla í götin Enski boltinn Fleiri fréttir Minning Jorge Messi heiðruð víða um heim Betur fór en á horfðist fyrir leik Íslendingaliðsins Aðför að forsetanum segir FIFA í harðorðri yfirlýsingu Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Guðrún úr leik eftir tap fyrir Juventus Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Ensk landsliðskona vill sniðganga HM Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Sjá meira