Um gæluverkefnin í Reykjavík Sabine Leskopf skrifar 19. mars 2026 07:45 Það eru síendurtekið stef í aðdraganda kosninga að það þurfi að spara í rekstri Reykjavíkurborgar. Þegar leitað er eftir því hvar sé best að spara er horft til svokallaðra gæluverkefna. Það sem helst er í umræðunni nú fyrir sveitastjórnarkosningar eru tillögur um að best sé að loka Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Þannig væri hægt að segja upp þeim 6 starfsmönnum sem þar starfa og væntanlega fjármagna göng og mislæg gatnamót um alla borg, laga mygluvandann og leysa húsnæðisþörfina. Staðan í heiminum í dag vinnur einnig með þeirri afstöðu að mannréttindi séu hreinlega óþörf. Hvort sem maður lítur vestanhafs eða nær sér þá er það orðræðanað gera lítið úr mannréttindum og nauðsyn þess að standa vörð um þau. En raunveruleikinn sem mun blasa við næsta meirihluta borgarstjórnar, alveg sama hvernig hann verður samansettur, er sá að meirihluti þeirra verkefna sem starfsfólk mannréttindaskrifstofu sinnir eru lögbundin og þau verkefni þarf hvort sem er að vinna. Það að færa starfsfólk til og eða ráða nýtt er ekki sparnaður heldur miklu frekar líklegur kostnaðarauki. Umsjón með lögbundnum hlutverkum og verkefnum í málaflokki jafnréttis- og mannréttinda er bæði skilvirkari og hagkvæmari ef sértæk þekking og starfsemi er til staðar, sem um leið nýtist öllum sviðum borgarinnar. Undir það falla t.d. samráðsverkefni við notendur fatlaðs fólks og hagsmunasamtök eldra fólks. Þessum verkefnum er ekki hægt að vísa einfaldlega undir velferðarsvið eða önnur ráð vegna þess að það er eðli eftirlits hagsmunaaðila að þau séu vistuð á öðrum sviðum en þeim sem veita þjónustuna. Það er líka hluti af staðalmyndum að öll málefni fatlaðs fólks eða eldra fólks séu velferðarmál. Það eru jafn oft skipulagsmál, ofbeldisvarnarmál, þátttaka í menningu og íþróttum o.s.frv.. Í raun er það ákveðin vanvirðing í því að horfa á fatlað fólk og eldri fólk ekki sem sjálfstæðar manneskjur með fjölbreyttar þarfir, áhugamál og réttindi heldur einungis notendur þjónustu vegna stöðu sinnar. Fleiri verkefni sem eru annaðhvort lögbundin eða fest í samþykktri stefnumótun borgarinnar eru Eftirfylgni með jafnréttisáætlun Reykjavíkurborgar skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, lög nr. 151/2020 Regnbogavottun sem er aðalverkefni sérfræðings í hinsegin málefnum, aftur eitthvað sem þarf að þjónusta alla borgina en þar eru til dæmis sundlaugar undir og skólar Eftirfylgni með stefnu um fjölmenningarborgina og samráð við innflytjendur en þar hafa samskiptaleiðir minnkað gífurlega af hálfu ríkisins með því að leggja niður fjölmenningarsetur eða ráðgjöf fyrir innflytjendur. Alþjóðlegt samstarf á borð við Nordic Safe Cities er starfrækt á þessari skrifstofu þar sem samtal við hin Norðurlöndin á sér stað um öryggi í borgum, ofbeldisvarnir og ógnir við lýðræði Ofbeldisvarnarmálin en undir það falla útköll vegna heimilisofbeldis, samstarfsverkefni Saman gegn ofbeldi eða stuðningur borgarinnar við Bjarkahlið. Allt verkefni sem hafa bjargað mannslífum þori ég að fullyrða. Reykjavíkurborg er höfuðborg Íslands og á að mínu mati að vera leiðandi í málaflokkum jafnréttis- og mannréttindamála Ég tel að við ættum að vera stolt af því að Reykjavíkurborg sé borg fyrir öll þar sem fólk á að njóta sín til fulls óháð uppruna, trúarbragða, kynhneigðar, kynvitundar, aldurs, fötlunar eða annarrar stöðu. Og hvað segir þetta um fólk sem nú sækist eftir völdum í borginni að kalla starfsfólk sem sinnir vernd íbúa og starfsfólks borgarinnar frá ofbeldi og mismunun „fitulag“ sem þarf að skera burt? Höfundur er borgarfulltrúi og formaður mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sabine Leskopf Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar