Kosning um staðsetningu kláfs á Ísafirði? Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar 18. mars 2026 13:15 Það kemur fyrir að umdeildar framkvæmdir séu settar á skipulagsáætlun. Framkvæmdir sem mörgum kann að hugnast en öðrum kann að hrjósa hugur við. Það er fullkomlega eðlilegt. Ein þessháttar framkvæmd kemur hugsanlega til framkvæmda á Ísafirði. Um er að ræða kláf sem ferja á fólk upp á Eyrarfjall. Eins og gengur og gerst eru sumir hrifnir og aðrir minna hrifnir. Líklega hafa þó flestir ekkert á móti kláfi. Einhverjir gætu þó haft lítinn hug þar á og því sem viðlíka framkvæmd kann að fylgja, einhverjir gætu fagnað því: aukinn túrismi, breyting á ásýnd bæjarins. Eins og gengur og gerist. Mestur styr hefir þó staðið um staðsetninguna. Fyrirhuguð staðsetning er í íbúðahverfi og hefði hún talsverð áhrif á ræktunarsvæði Gróanda þar sem félagslandbúnaður er í heiðri hafður. Líkast til þyrfti ræktunarsvæðið að víkja fyrir kláfnum komi hann til framkvæmda. Líklega yrði svo eitthvert ónæði fyrir íbúa svæðisins vegna aukinnar umferðar, bæði umferð fótgangandi og bílaumferð. Nokkur fjöldi athugasemda við skipulagið hefir enda verið sendur inn af íbúum bæjarins og lúta þær að mestu leyti að þessum þáttum: Að Gróandi þurfi líklegast víkja og ónæði sem myndi hljótast af aukinni umferð í íbúðahverfi. Þar sem málið er umdeilt og líta má á sem svo að það varði alla íbúa Ísafjarðarbæjar (um það eru örugglega deildar meiningar) var ákveðið að freistast til þess að athuga hvort vilji væri fyrir því að greiða atkvæði um staðsetninguna. Var brugðið á það ráð að stofna undirskriftalista til að fara þess á leit við Ísafjarðarbæ að samhliða sveitarstjórnarkosningum 16. maí næstkomandi gefist íbúum tækifæri til að greiða atkvæði um staðsetninguna með já eða nei. Í þeirri beiðni er fólgið ákall um íbúalýðræði. Taka skal skýrt fram að hér er eingöngu átt við staðsetninguna. Ekki er tekin afstaða til þess hvort kláfur eigi heima á Ísafirði eður ei. Þeir sem eru fylgjandi staðsetningu svo og þeir sem eru á móti eiga að sitja við sama borð. Og þar sem framkvæmdin er umdeild er næsta víst betra að vita að maður geri ekki eitthvað sem er hugsanlega í trássi við vilja meirihlutans. Nú auðvitað kunna einhverjir að vera þeirrar skoðunar að þetta eigi ekki að leggja undir íbúa bæjarins, að málið sé ekki nægilega stórt, að treysta eigi embættismönnum og kjörnum fulltrúum til að sinna þessu verki líkt og einhverjir eru kannski á því að slíkt hið sama ætti að gilda um inngöngu í Evrópubandalagið svo og inngöngu í NATO á sínum tíma (hér er ekki verið að leggja að jöfnu). Það er barasta góð og gild afstaða. Þeir hinir sömu leggja þá bara ekki nafn sitt við listann. Hinir gjöra svo. En fari svo að tilhlýðilegur fjöldi æski kosninga yrði auðvitað farið í útfærslu. Augljóst má samt þykja að þeir sem standa að þessum lista (undirritaður er ekki einn) telja málið ágætlega til þess fallið að íbúar greiði um það atkvæði hvort sem þeir eru með eða á móti. Hér má því skrifa undir áskorun til Ísafjarðarbæjar um að kosið verði um téða staðsetningu samhliða sveitarstjórnarkosningum 16. maí næstkomandi. Smellið hér til að skrifa undir. Virðingarfyllst, Ólafur Guðsteinn Kristjánsson, áhugamaður um íbúalýðræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ísafjarðarbær Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar