Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 17. mars 2026 23:56 Íbúi á eyjunni Súlu tók þessa mynd í kvöld. Håvar Sandvik Á þriðja hundrað manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna stærðar skógareldar í Álasundi á Sunnmæri í Noregi. Til stendur að rýma fleiri heimili en suðurhlíð Sykurtopps á eyjunni Heissu, vestustu eyju byggðarinnar, er eitt eldhaf. Samkvæmt umfjöllun Verdens gang barst slökkviliðinu í Álasundi fyrst tilkynning um eldinn á þriðja tímanum í dag að staðartíma. Á kortinu hér að neðan sést hvar íbúum hefur þegar verið gert að rýma í grænu og hvar til stendur að rýma í rauðu. Um 300 manns hefur verið gert að yfirgefa heimili sín bæði norðan- og sunnanmegin tindsins. Lögreglan gaf myndina út í svo lágri upplausn en á henni er suðurhluti byggðarinnar á eynni Heissu.Lögreglan á Mæri og Raumsdal Allt tiltækt slökkvilið vinnur að því að slökkva eldinn en hann er sums staðar kominn skuggalega nálægt byggð. Fyrr í kvöld sagði Sindre Kongshaug vaktstjóri í slökkviliði Álasunds að eldhafið ætti ekki nema um 80 metra í byggðina. Þeim sem hefur verið gert að rýma hefur verið komið upp á hótelum um bæinn en gert er ráð fyrir því að rýma gæti þurft fleiri hverfi eftir því sem á líður nóttina.
Samkvæmt umfjöllun Verdens gang barst slökkviliðinu í Álasundi fyrst tilkynning um eldinn á þriðja tímanum í dag að staðartíma. Á kortinu hér að neðan sést hvar íbúum hefur þegar verið gert að rýma í grænu og hvar til stendur að rýma í rauðu. Um 300 manns hefur verið gert að yfirgefa heimili sín bæði norðan- og sunnanmegin tindsins. Lögreglan gaf myndina út í svo lágri upplausn en á henni er suðurhluti byggðarinnar á eynni Heissu.Lögreglan á Mæri og Raumsdal Allt tiltækt slökkvilið vinnur að því að slökkva eldinn en hann er sums staðar kominn skuggalega nálægt byggð. Fyrr í kvöld sagði Sindre Kongshaug vaktstjóri í slökkviliði Álasunds að eldhafið ætti ekki nema um 80 metra í byggðina. Þeim sem hefur verið gert að rýma hefur verið komið upp á hótelum um bæinn en gert er ráð fyrir því að rýma gæti þurft fleiri hverfi eftir því sem á líður nóttina. Ert þú eða einhver sem þú þekkir búsettur í Álasundi? Ertu með myndefni? Sendu okkur fréttaskot hérna.
Ert þú eða einhver sem þú þekkir búsettur í Álasundi? Ertu með myndefni? Sendu okkur fréttaskot hérna.
Noregur Gróðureldar Mest lesið Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Innlent Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Innlent Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Langreyðarnar komnar á land Innlent Leitar eftir stuðningi almennings vegna einstaks dómsmáls Innlent „Planið“ sé byrjað að virka Innlent „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ Innlent Fleiri fréttir Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Sjá meira