Nánari skýringar á ólögmæti verðtryggingarinnar Örn Karlsson skrifar 17. mars 2026 12:31 Óumdeilt er í peningahagfræðinni að vísitala neysluverðs er ekki bær til mats á rýrnun innra virðis greiðslumyntar. Þetta er grundvallaratriði sem Seðlabanki Íslands vanvirðir í peningastjórn sinni og þetta er grundvallaratriði sem Seðlabanki Íslands og hagfræðingar hagfræðideildar Háskóla Íslands hafa vanvirt til áratuga í leiðbeiningaþjónustu sinni við almenning og Alþingi Íslendinga. Sennilega er þó ekki um vísvitandi vanrækslu að ræða heldur fádæma vankunnáttu og vanhæfni hinna íslensku samanborið við fremstu peningahagfræðinga frjálsra hagkerfa. Vanvirðing við ofangreint grundvallaratriði hagfræðinnar hefur leitt til reglulegs efnahagsójafnvægis, með verðbólgu og hávöxtum í íslensku hagkerfi og kjánalegrar og ólöglegrar lagasetningar um verðtryggingu neytendalána. Kreppuverðbólgan sem við nú sitjum í er bein afleiðing vanvirðingar Seðlabanka Íslands við þetta náttúrulega grundvallaratriði peningahagfræðinnar. Eftir rannsóknir á tíunda áratug síðustu aldar varð seðlabönkum frjálsra hagkerfa nema þeim íslenska ljóst að virðing við ofangreint grundvallaratriði hefur úrslitaáhrif um árangur peningastjórnunar. Ítarleg skoðun á olíukreppunum um og fyrir 1980 og kreppuverðbólgunni í kringum þær leiddi í ljós að tól seðlabanka eru ekki fallin til glímu við þann þátt hækkunar vísitölu neysluverðs sem ekki á sér rætur eða skýringar í rýrnun innra virðis greiðslumyntar. Hagvísindin eru skýr um að greina megi hækkun vísitölu neysluverðs í tvo meginþætti. Annars vegar peningaþátt sem leiðir frá því sem kalla má kjarnaverðbólgu, þ.e. hækkun vöruverðsins sem stafar frá rýrnun innra virðis greiðslumyntar. Og hins vegar afleiðuþátt vísitölunnar þegar hækkun vísitölunnar leiðir af verðhækkun einstakra vara eða vöruflokka vegna atvika í umhverfi þeirra ótengdra peningum eða rýrnun peninga (raunhækkun). Rannsóknirnar sýndu að kreppuverðbólgan sem myndaðist í kringum fyrrnefndar olíukreppur á síðustu öld stafaði ekki frá raunhækkun olíuverðsins heldur frá hertri peningastefnu sem svar við hækkun vísitölu neysluverðs afleiddri af raunhækkun olíuverðsins. Frá 10 áratug síðustu aldar hafa því bestu seðlabankar frjálsra hagkerfa, þar með talinn Evrópubankinn, lagt alla áherslu á að nálgast gildi kjarnaverðbólgunnar til að koma í veg fyrir ótímabæra hækkun og ofreisingu stýrivaxta. Með öðrum orðum til að koma í veg fyrir að afleiðuhluti hækkunar vísitölu neysluverðs villi sýn við stjórn peningamála. Því miður hafa þessar rannsóknarniðurstöður vart náð að til Íslands og þess vegna er Seðlabanki Íslands ennþá að framleiða „olíukreppur“ með kreppuverðbólgu og þess vegna höfum við hagfræðilega brenglaðan lagatexta um verðtryggingu. Í apríl árið 2000 var fimm manna nefnd með fulltrúa frá Seðlabanka Íslands skipuð til að endurskoða vaxtalög. Ný lög um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 sem byggðu á vinnu nefndarinnar voru svo staðfest af Alþingi rúmlega ári síðar eða 1. júlí 2001. Af texta VI kafla laganna, kaflans um verðtryggingu, má merkja að hagrannsóknirnar áðurnefndu sem fram fóru áratuginn á undan, bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum og lutu að peningastjórn og greiningu vísitölu neysluverðs í peningaþátt (kjarnaverðbólgu) og afleiðuþátt höfðu alveg farið framhjá nefndarmönnum. Í umsögn með 13. gr. og 14. gr. laganna segir efnislega að nefndarmenn séu þeirrar skoðunar að opinberar reglur um verðtryggingu fjárskuldbindinga þjónuðu fyrst og fremst þeim tilgangi að verja almennt sparifé og lánsfé landsmanna fyrir rýrnun af völdum innlendrar verðbólgu. Tilgreining vísitölu neysluverðs til mats á rýrnun sparifjárins til ákvörðunar um lögskiptin stendur gegn niðurstöðu þeirra hagrannsókna sem áður er vísað til því aðeins annar af tveimur meginþáttum vísitölunnar tekur breytingum frá rýrnun greiðslumyntarinnar. Í þeim tilfellum og á þeim tímabilum þegar einstakar vörur eða vöruflokkar taka verðbreytingum af öðrum ástæðum en þeim sem tengjast rýrnun greiðslumyntarinnar verður verðtryggður lánasamningur afleiðusamningur. Slíkt dæmi blasir við nú þegar olíuverð og tengdar vörur eru í fasa verulegrar verðhækkunar vegna aðgerða Bandaríkjastjórnar í Íran en ekki vegna þess að greiðslumyntin sé í fasa rýrnunar. Verðtryggður lánasamningur er afleiðusamningur við þessar aðstæður hækkandi olíuverðs í samræmi við skilgreiningu á afleiðusamningum sem nefndin og lögin vísa til. Í lögum um vexti og verðtryggingu er vísað til laga um verðbréfaviðskipti nr. 13/1996 um skilgreiningu á afleiðusamningi: „Afleiðusamningur: Samningur þar sem uppgjörsákvæði byggist á breytingu einhvers þáttar, svo sem vaxta, gengis gjaldmiðla, verðbréfaverðs, verðbréfavísitölu eða hrávöruverðs. Andvirði slíks samnings er háð breytingu þessara viðmiðunarþátta á tilteknu tímabili.“ Viðmiðunarþættir vísitölu neysluverðs eru allar vörur í körfu hennar. Þegar og ef einstakir vörur körfunnar breytast í verði vegna atvika annarra en breytinga á innra virði greiðslumyntarinnar breytist andvirði verðtryggðs lánasamnings að raunvirði. Er þá samningurinn orðinn afleiða þeirra breytinga raunverðs einstakra vara í körfunni. Að íslenskum lögum er verðtryggður lánasamningur þá afleiðusamningur að minnsta kosti á meðan vísitala neysluverðs ákvarðar lögskiptin. Náðarhögg verðtryggingarinnar í lagalegu tilliti birtist í 2. mgr. 13. gr. laganna, sem er hluti VI. kaflans um verðtryggingu. Þar segir orðrétt: „Afleiðusamningar falla ekki undir ákvæði þessa kafla.“ Verðtryggingin er því ólögleg fyrir þá handvömm að nefndarmennirnir sem sömdu frumvarpið og þjónuðu Alþingi þekktu ekki þá hagrænu staðreynd að hækkun vísitölu neysluverðs stafar ekki alltaf frá rýrnun greiðslumyntarinnar heldur er hún reglulega afleidd af verðbreytingum einstakra vara vegna atvika algerlega óháðra peningum og innra virði þeirra. En óháð vanþekkingu nefndarinnar á hagþáttum vísitölu neysluverðs eru verðtryggðir lánasamningar ólöglegir að teknu tilliti til eignarréttarákvæðis stjórnarskrárinnar, því sá hluti lögskiptanna sem er ótengdur leiðréttingu gagnvart rýrnun innra virðis greiðslumyntarinnar, þ.e. afleiðuhlutinn, er raunveruleg eignatilfærsla. Hér er um að ræða eignatilfærslu á raunverulegum eignum oftast frá skuldugum fjölskyldum til fjármálastofnana. Slík raunveruleg eignatilfærsla er á skjön við tilgang laganna um vexti og verðtryggingu, en tilgangur verðtryggingarinnar er að gera samningsaðila jafnsetta eftir leiðréttinguna í eignalegu tilliti. En verðtryggingin er ekki bara vandamál af ofangreindum ástæðum. Verðtryggingin stangast einnig á við verðstöðugleikaákvæði laga um Seðlabanka Íslands. Því hún er verðbólguvaldandi og hamlar því miðlun peningastefnunnar. Verðtryggingin mismunar einnig handhöfum peningamagnsins. Eftir því sem verðtryggingin nær til stærra hlutfalls peningamagnsins þeim mun meira rýrnar sá hluti þess sem ekki er verðtryggður undir verðbólguþrýstingi og verðbólguhalinn verður lengri. Þess vegna, m.a., þarf íslenskt launafólk að fá örar leiðréttingu á kjörum sínum samanborið við launafólk á öðrum Norðurlöndum. Mikilvægur hluti leiðarinnar að verðstöðugleika, lögbundnu markmiði Seðlabankans og sú réttasta og hreinlegasta að teknu tilliti stjórnarskrár, Evrópuréttar og mannréttinda er að banna verðtryggingu á neytendamarkaði með lögum. Verðtryggð lán héldu þá áfram vöxtum sínum en verðtryggingin félli niður. Til að flýta aðlögun að nýju kerfi mætti mögulega stytta þessi lán að teknu tilliti til bærilegrar greiðslubyrði. Þannig má mögulega fasa þau út á 20 árum. Sennilega munu fjármálastofnanir reyna að fá ímyndaðan eignarrétt bættan úr hendi ríkisins við afnám verðtryggingar, en það mun verða torsótt því verðtryggingin er ólögleg og slíkur eignaréttur því ekki fyrir hendi. Höfundur er vélaverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Örn Karlsson Mest lesið Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Hildur fækkaði bílastæðum um 3000 Magnús Kjartansson Skoðun Gangbrautarvörður sem vill leysa málin Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun Fortíðin er ekki aukaatriði, hún er viðvörun Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Sterk rödd eldri borgara Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson Skoðun Munu „dauðu“ atkvæðin leiða Sjálfstæðisflokk og Miðflokk til valda? Bolli Héðinsson Skoðun Skoðun Skoðun Styrkjum íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni Eva Rún Helgadóttir skrifar Skoðun Hestar í höfuðborginni Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Okkar sameiginlegu verk Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hvernig er að eldast í Reykjavík? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ríða, drepa, giftast Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson skrifar Skoðun Byggjum meira félagslegt húsnæði í Reykjavík Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Gangbrautarvörður sem vill leysa málin Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Löng valdaseta bara vandamál fyrir suma Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Börnin í Laugardalnum eiga betra skilið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Sjómenn á smábátum hafa verið saminingslausir í rúm 12 ár Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar Skoðun Og þeir skoðra og þeir skoða og skora og skora á ný Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Eru vísindi „tabú“ í almannaumræðu? Loftslagsmál upplýst Ágúst Kvaran skrifar Skoðun Belonging Elísabet Dröfn Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Nýtum kosningaréttinn Sigurður Kári Harðarson,Sólveig Jóhannesdóttir Larsen skrifar Skoðun Sterk rödd eldri borgara Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Fortíðin er ekki aukaatriði, hún er viðvörun Anna Kristín Jensdóttir skrifar Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson skrifar Skoðun Hin heillandi fortíðarþrá Ragnar Sverrisson skrifar Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Tækifæri í rusli Lísbet Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvers vegna fer miðaldra kona í framboð? Bryndís Rut Logadóttir skrifar Skoðun Þegar við höfnuðum „Viljandi villt“ Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar Skoðun Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir skrifar Skoðun Hildur fækkaði bílastæðum um 3000 Magnús Kjartansson skrifar Skoðun Unga fólkið heim aftur Adam Ingi Guðlaugsson skrifar Skoðun Er kominn tími til að leyfa milliakreinaakstur? Njáll Gunnlaugsson skrifar Skoðun Aukning starfsmanna Reykjavíkurborgar Björn Leví Gunnarsson skrifar Sjá meira
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun
Skoðun Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson skrifar
Skoðun Sjómenn á smábátum hafa verið saminingslausir í rúm 12 ár Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar
Skoðun Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir skrifar
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun