Handbolti

„Allt of snöggur og ó­væntur endir“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Dana Björg Guðmundsdóttir (t.h.) verður fjarri góðu gamni í næsta landsliðsverkefni. 
Dana Björg Guðmundsdóttir (t.h.) verður fjarri góðu gamni í næsta landsliðsverkefni.  EPA/CHRISTOPHER NEUNDORF

Tímabilinu er lokið hjá Dönu Björg Guðmundsdóttur, landsliðskonu í handbolta. Hún sleit liðband í ökkla um helgina í leik með Volda í Noregi.

Dana Björg er á sínu fjórða og síðasta tímabili hjá Volda. Hún hafði skorað þrjú mörk í leiknum um helgina þegar hún meiddist og nú er ljóst að hún mun ekki snúa aftur á völlinn með Volda. Í sumar skiptir hún yfir til úrvalsdeildarliðsins Larvik.

Auk þess að missa af síðustu leikjum tímabilsins með Volda verður hún fjarri góðu gamni þegar Ísland mætir Færeyjum og Portúgal í undankeppni EM í næsta mánuði.

„Ekki alveg svona sem ég sá síðasta tímabilið mitt hjá Volda enda. Allt of snöggur og óvæntur endir á þessum fjórum árum í Volda treyjunni. Takk kærlega fyrir öll fallegu skilaboðin sem ég hef fengið. Nú tek ég smá hvíld og byrja svo að æfa aftur á fullum krafti,“ skrifar Dana Björg úr sjúkrarúminu í færslu á Instagram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×