Skiptir máli hvort Jens Garðar sé á þingi? Svanborg Sigmarsdóttir skrifar 17. mars 2026 11:02 EES-samningurinn er allra mikilvægasti viðskiptasamningur Íslendinga við önnur ríki. Ekki einungis er þetta samningur sem heimilar okkur að selja íslenskar vörur á risastóran evrópskan markað á kostakjörum, heldur hefur nánast allur neytendaréttur okkar komið til Íslands vegna hans. Við ferðumst um Evrópu án þess að bíða í löngum röðum við vegabréfaskoðun. Við höfum flust til Evrópu, búið þar, lært og unnið án sérstakra leyfa. Mörg okkar vonast til þess að börnin okkar flytji aftur heim einn daginn, ef aðstæður leyfa. Sömu réttindi Með EES-samningnum fylgir líka mikið af samevrópskum reglum sem tryggja að innan þessa sameiginlega markaðssvæðis gildi sömu lög. Að þú, Mette, Friedrich og Janek hafið öll sömu skyldu til að tryggja gæði vara sem þið seljið og njótið sömu réttinda varðandi vörur sem þið kaupið. Og að þið hafið sömu réttindi þar sem þið búið, vinnið eða lærið og haldið þeim réttindum sem þið hafið unnið ykkur inn, þó þið flytjið innan Evrópu. Eigum við að sitja heima og horfa á? Sumir Íslendingar virðast ekki vilja hafa áhrif á það hverjar þessar samevrópsku reglur eru. Frá 1994 höfum við verið í “aðlögun” að reglum Evrópusambandsins, án þess að hafa nokkurn við borðið sem semur þær reglur. Í staðinn segja efasemdamenn um aðila að við séum svo fá, við skiptum því engu máli. Stærri þjóðir muni alltaf ráða öllu. Með minnimáttarkennd er horft niður á tær og reynt að skrifa okkur sjálf úr leik, áður en við reynum á hvaða áhrif við gætum haft með því að eiga sæti við borðið, eins og hin 27 fullvalda og sjálfstæðu ríkin innan Evrópusambandsins. Jens Garðar og Eskifjörður Þetta er svolítið eins og að segja að Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hafi engin áhrif á Alþingi af því að hann er frá Eskifirði. Á Eskifirði búa rúmlega þúsund manns, sem er ekki nema um 0,2% af heildaríbúafjölda Íslands. Hann er sjálfur tæplega 2% af alþingismönnum. Ef við horfum á þessar tölur án samhengis, þá komumst við kannski að þeirri niðurstöðu að það skipti engu máli hvort Jens Garðar sé á þingi eða ekki. Að hann hafi einfaldlega ekkert vægi. Áhrif byggjast á vinnusemi Alveg eins og Jens getur barist fyrir hagsmunum Eskifjarðar á þingi, gæti íslenskur Evrópuþingmaður barist fyrir hagsmunum íslensks sjávarútvegs, iðnaðar eða flugsamgöngum. Eins og á Alþingi, þá skiptist Evrópuþingið í flokka og kjörnir fulltrúar frá hverju landi starfa í slíkum flokkum þvert á landamæri. Til að Jens komi mikilvægu máli fyrir Eskifjörð áfram innan þingsins, þá þarf hann að vinna samflokksmenn sína á sitt band. Hið sama gildir innan Evrópuþingsins. Ef Jens vill leggja áherslu á að efla höfnina á Eskifirði, þá reynir hann að hafa áhrif á aðra þingmenn í umhverfis- og samgöngunefnd, þvert á flokka og búsetu til að breyta samgönguáætlun svo hún endurspegli það. Það sama gera Evrópuþingmenn. Tökum okkar pláss Áhrif Íslands á Evrópuþinginu fara miklu frekar eftir styrkleika, eljusemi og pólitískri hæfni þeirra þingmanna sem íslenska þjóðin myndi kjósa til þingsins en einungis fjölda þeirra. Útilokum ekki fyrir fram áhrif Íslands á evrópska löggjöf með því að tala okkur sjálf niður. Áhrifin verða aldrei minni en þau eru í dag, þar sem við bíðum frammi á gangi og fáum ekki að taka til máls við borðið. Við eigum betra skilið en að vera áhorfendur að eigin hagsmunum. Höfundur er framkvæmdastjóri Viðreisnar, stjórnmálafræðingur og áhugamanneskja um evrópusamvinnu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Svanborg Sigmarsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson Skoðun Halldór 27.06.2026 Halldór Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson Skoðun Skoðun Skoðun Verður valdagræðgi Flokks fólksins honum að falli? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Tengsl eru innviðir samfélagsins Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Börnin fyrst, en þau bíða enn Steindór Þórarinsson,Jón K. Jacobsen skrifar Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Kannski“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Ábyrgð í orði og verki Lilja Dögg Alfreðsdóttir,Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Stóru verkefnin leysum við saman Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Varúð má ekki verða að forræðishyggju Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Brexit og fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla hér á landi Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher skrifar Skoðun Upplýst umræða og framsal ríkisvalds Margrét Einarsdóttir skrifar Skoðun Skólinn er alltaf vandinn Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Geisp Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Það sem kynslóðir byggðu – og okkar ábyrgð að varðveita Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Handan óttans: Hvers konar Ísland viljum við byggja? Bjarndís Helena Mitchell skrifar Skoðun Lifandi hvalir skapa líka verðmæti Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar Skoðun Hangið frammi á gangi í von um fréttir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Viðreisn gengur í verkin Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Hvernig líður fjölskyldunni? Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar