Tannheilsa má ekki gleymast Fríða Bogadóttir skrifar 16. mars 2026 13:30 Tannheilsa er mikilvægur hluti af almennri heilsu og vellíðan og það er mikilvægt að huga vel að þessum hluta líkamans og vanda munnhirðu. Öll viljum við halda í okkar eigin tennur til æviloka. Tannlækningar hafa verið stundaðar í mörg þúsund ár og eru að finna ummerki aftur til ársins 7000 f. Kr. Það var ekki fyrr en árið 1723 að tannlækningar fóru að þróast sem sérstök heilbrigðisgrein, og dagleg tannburstun varð ekki almennur vani fyrr en eftir síðari heimsstyrjöld. Vegna bættrar munnhirðu og aukinni fræðslu um mikilvægi munnhirðu eru margir að ná því markmiðið að halda í sínar eigin tennur út lífið. Það eru mikil lífsgæði að geta notað tennurnar út ævina og er mikill skilningur manna í dag á mikilvægi þess að tannbursta og passa munnhirðu. Tannlæknafélag Íslands hvetur landsmenn að huga vel að munnhirðu og tannheilsu og grípa frekar í vatnið en gosdrykki og sykraða djúsdrykki. Ungt fólk er farið að drekka orkudrykki í auknu mæli og glerungseyðing er orðið vandamál hjá unglingum. Eldri kynslóðin er farin að geta haldið í sínar eigin tennur lengur og jafnvel til æviloka. Á eldri árum fylgir oft munnþurrkur. Ef það er minni munnvatnsframleiðsla þá tekur það lengri tíma fyrir líkamann að hreinsa sykur af tönnum. Stillum sælgætisneyslu í hóf og reynum að halda okkur við einn nammidag í viku. Munum að borða hollt og bursta tennurnar að minnsta kosti tvisvar á dag með flúortannkremi og nota tannþráð. Þessa vikuna stendur Tannlæknafélag Íslands fyrir vitundarvakningu með það að markmiði að vekja athygli á mikilvægi góðrar tannheilsu. Tannverndarvika er haldin í tengslum við Alþjóðlegan tannverndardag, sem er 20. mars ár hvert. Slagorðið í ár er ,,A Happy Mouth is a Happy Life“, eða „Heilbrigður munnur er hamingjuríkt líf“. Veljum vatnið þessa vikuna og borðum hollt. Höfundur er tannlæknir og formaður Tannlæknafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tannheilsa Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Tannheilsa er mikilvægur hluti af almennri heilsu og vellíðan og það er mikilvægt að huga vel að þessum hluta líkamans og vanda munnhirðu. Öll viljum við halda í okkar eigin tennur til æviloka. Tannlækningar hafa verið stundaðar í mörg þúsund ár og eru að finna ummerki aftur til ársins 7000 f. Kr. Það var ekki fyrr en árið 1723 að tannlækningar fóru að þróast sem sérstök heilbrigðisgrein, og dagleg tannburstun varð ekki almennur vani fyrr en eftir síðari heimsstyrjöld. Vegna bættrar munnhirðu og aukinni fræðslu um mikilvægi munnhirðu eru margir að ná því markmiðið að halda í sínar eigin tennur út lífið. Það eru mikil lífsgæði að geta notað tennurnar út ævina og er mikill skilningur manna í dag á mikilvægi þess að tannbursta og passa munnhirðu. Tannlæknafélag Íslands hvetur landsmenn að huga vel að munnhirðu og tannheilsu og grípa frekar í vatnið en gosdrykki og sykraða djúsdrykki. Ungt fólk er farið að drekka orkudrykki í auknu mæli og glerungseyðing er orðið vandamál hjá unglingum. Eldri kynslóðin er farin að geta haldið í sínar eigin tennur lengur og jafnvel til æviloka. Á eldri árum fylgir oft munnþurrkur. Ef það er minni munnvatnsframleiðsla þá tekur það lengri tíma fyrir líkamann að hreinsa sykur af tönnum. Stillum sælgætisneyslu í hóf og reynum að halda okkur við einn nammidag í viku. Munum að borða hollt og bursta tennurnar að minnsta kosti tvisvar á dag með flúortannkremi og nota tannþráð. Þessa vikuna stendur Tannlæknafélag Íslands fyrir vitundarvakningu með það að markmiði að vekja athygli á mikilvægi góðrar tannheilsu. Tannverndarvika er haldin í tengslum við Alþjóðlegan tannverndardag, sem er 20. mars ár hvert. Slagorðið í ár er ,,A Happy Mouth is a Happy Life“, eða „Heilbrigður munnur er hamingjuríkt líf“. Veljum vatnið þessa vikuna og borðum hollt. Höfundur er tannlæknir og formaður Tannlæknafélags Íslands.
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar