Bætir í norðaustanáttina að nýju Atli Ísleifsson skrifar 16. mars 2026 07:15 Hiti verður yfirleitt núll til fimm stig að deginum. Vísir/Vilhelm Alldjúp lægð mjakast nú austur skammt suðaustur af landinu og í kvöld kemur svo lægð sunnan úr hafi og sameinast við hina fyrri suðaustur af landinu og bætir þá í norðaustanáttina að nýju.
Á vef Veðurstofunnar segir að í dag megi búast við norðaustanátt, víða 8 til 13 metrum á sekúndu og éljum, en léttskýjuðu á sunnanverðu landinu. Hvassviðri og snjókoma eða él norðan- og austanlands í nótt, en heldur hægari síðdegis á morgun. Hiti verður yfirleitt núll til fimm stig að deginum. „Norðanáttin ætti að ganga niður á miðvikudag, en á fimmtudag er útlit fyrir hvassa sunnanátt með talsverðri rigningu og hlýindum. Hlýja loftið ætlar þó ekki að staldra lengi við, því á föstudag og laugardag er spáð suðvestanátt með éljum og kólnandi veðri,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðlæg átt 10-18 m/s, hvassast vestantil. Snjókoma eða él, en að mestu þurrt á Suður- og Suðvesturlandi. Hiti kringum frostmark. Á miðvikudag: Minnkandi norðvestanátt og skýjað með köflum, en dálítil él í fyrstu norðaustanlands. Vaxandi sunnanátt vestast um kvöldið og þykknar upp. Víða vægt frost. Á fimmtudag: Hvöss sunnanátt og rigning, einkum sunnan- og vestanlands. Hiti 5 til 10 stig seinnipartinn. Á föstudag og laugardag: Suðvestanátt og él, en þurrt og bjart á Austurlandi. Kólnandi veður. Á sunnudag: Útlit fyrir minnkandi suðvestlæga átt með stöku éljum, en bjartviðri um landið austanvert. Frost um mest allt land.
Veður Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Fleiri fréttir Allvíða skúrir og lægð nálgast Víða rigning en hiti að átján stigum Úrkoma í flestum landshlutum í dag Rauðar viðvaranir í Bretlandi vegna hita Úrkoma víða og hiti að sextán stigum Víða skúraleiðingar og hiti að fimmtán stigum Sextán stig en líkur á síðdegisskúrum Bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum Allhvasst suðaustantil og sums staðar rigning Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Hiti að átján stigum norðan og vestantil Austlæg átt og víða líkur á vætu 250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Áfram rólegheitaveður en líkur á síðdegisskúrum Sólin sleikir landsmenn Áfram bongó í kortunum og nú um allt land „Gegnumgangandi bongó um helgina“ Hitinn náði yfir tuttugu stig Möguleiki á að hiti fari yfir tuttugu stig í höfuðborginni Möguleiki á tuttugu stiga hita Útlit fyrir besta dag sumarsins á föstudaginn Skúrir víða um land og lægð nálgast austurströnd „Mjög venjulegt sumarveður“ Þónokkrar lægðir stýra veðrinu næstu daga Rigning öðru hverju Hitinn gæti náð fimmtán stigum á Sjómannadaginn Milt veður um helgina Nokkuð vætusamt og þungbúið en milt veður Allnokkrar smálægðir að hringsóla í grennd við landið Skýjað og víða skúrir Sjá meira