Golf

Åberg leiðir með þremur höggum fyrir loka­hring Players meistaramótsins

Aron Guðmundsson skrifar
Ludvig Aberg er með örlögin í sínum höndum fyrir lokadag Players meistaramótsins í golfi. 
Ludvig Aberg er með örlögin í sínum höndum fyrir lokadag Players meistaramótsins í golfi.  David Cannon/Getty Images

Svíinn Ludvig Åberg leiðir Players meistaramótið í golfi með þremur höggum á TPC Sawgrass vellinum fyrir lokahring mótsins í dag. 

Åberg fór þriðja hring gærdagsins á 71 höggi, einu höggi undir pari vallarins og er nú samtals á þrettán höggum undir pari. En frábær frammistaða Svíans á öðrum hring, þar sem Åberg fór hringinn á sextíu og þremur höggum, hefur lagt grunninn að þriggja högga forystu hans í dag. 

Næstir á eftir honum eru Bandaríkjamennirnir Michael Thorbjornsen á tíu höggum undir pari og Cameron Young á níu höggum undir pari. 

 Efsti maður heimslistans, Scottie Scheffler, hefur ekki átt sitt besta mót til þessa og er jafn í 26.sæti á alls fjórum höggum undir pari eftir fyrstu þrjá hringina. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×