John Alford fannst látinn í fangelsi Freyja Þórisdóttir skrifar 15. mars 2026 10:09 John Alford, leikari, hafði setið inni í tvo mánuði þegar hann lést. Getty Leikarinn John Alford er látinn. Hann lést föstudaginn 13. mars í HMP Bure fangelsinu í Norfolkfangelsi, tveimur mánuðum eftir að hann var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn tveimur unglingsstúlkum.
Frá þessu er greint á vef BBC en hinn 54 ára gamli fyrrverandi leikari, þekktur fyrir hlutverk sín í þáttunum Grange Hill og London's Burning, hét réttu nafni John Shannon. Hann hafði verið dæmdur í átta og hálfs árs fangelsi eftir að hafa verið fundinn sekur um kynferðisbrot. BBC greinir einnig frá því að talsmaður fangelsismálayfirvalda hafi í samtali við þau staðfest andlátið og sagt í yfirlýsingu: „John Shannon lést í fangelsi þann 13. mars 2026. Líkt og með öll andlát í varðhaldi mun umboðsmaður fanga og skilorðsbundinna rannsaka málið.“ John Alford var dæmdur í átta og hálfs árs fangelsi eftir að hafa gerst sekur um kynferðisofbeldi.Getty Alford, sem bjó í Holloway í Norður-Lundúnum, var dæmdur sekur fyrir fern mismunandi kynferðisbrot gegn fjórtán ára gamalli stúlku og um að eiga samræði við fimmtán ára gamla stúlku. Það var réttað yfir Alford undir hans rétta nafni, Shannon, í St Albans Crown Court í september á síðasta ári. Kviðdómi var sagt að leikarinn hefði keypt vodkaflösku fyrir stúlkurnar tvær sem þær drukku heima hjá vini í Hoddesdon, Hertfordshire, í apríl 2022. John Alford var þekktastur fyrir hlutverk sitt í þáttunum London's Burning.Getty Hann var fangelsaður fyrir tveimur mánuðum, þann 14. janúar, en Caroline Overton dómari sagði að brotin hefðu haft „veruleg og viðvarandi áhrif“ á líf fórnarlamba hans. Árin 1985 til 1989 lék Alford í barnaþáttum BBC, Grange Hill, þar sem hann lék hinn uppreisnargjarna fyrsta árs nema Robbie Wright. Hann var þó líklega þekktastur fyrir hlutverk sitt sem slökkviliðsmaðurinn Billy Ray í dramaþáttunum London's Burning sem hann tók að sér árið 1993. Alford var seinna rekinn úr þáttunum og dæmdur í níu mánaða fangelsi eftir að hann var sakfelldur fyrir að selja kókaín og kannabis til blaðamanns í leynilegri aðgerð árið 1997.
Andlát Kynferðisofbeldi Mest lesið „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Innlent „Skapaði mikla ringulreið hjá okkur og við erum hrædd“ Innlent John Alford fannst látinn í fangelsinu Erlent Hellisheiði er lokuð Innlent Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent „Við erum ekki hrædd“ Innlent Snjóflóð þveraði veginn þegar opið var fyrir umferð Innlent Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Innlent Fleiri fréttir John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Sjá meira