„Þessi Kane er stórhættulegur“ Aron Guðmundsson skrifar 15. mars 2026 08:02 DeAndre Kane í leik með Grindavík Vísir/Guðmundur DeAndre Kane heillaði sérfræðinga Körfuboltakvölds með frammistöðu sinni gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Stjörnunnar á föstudaginn síðastliðinn. Frammistaðan sem hann sýndi fram á þar er sá Kane sem Grindavík þarf til að taka næsta skref.
Það dylst engum að DaAndre Kane er frábær leikmaður sem kemur með ótrúlega mikla reynslu og hæfileika inn í lið Grindavíkur en hann hefur átt það til að missa hausinn þegar hlutirnir eru kannski ekki alveg að falla með honum. En í leiknum gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Stjörnunnar, þar sem að Grindavík tryggði sér deildarmeistaratitilinn með sigri, sýndi hann sínar bestu hliðar. Kane skoraði 26 stig í leiknum, tók átta fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Var potturinn og pannan í leik Grindavíkur og sýndi hvers hann er megnugur. Klippa: Sá Kane sem Grindavík þarf til að taka næsta skref „Mér fannst hann vera einhvern veginn ekki í þessu tuði, sveiflandi höndum eða hengja haus,“ sagði Hermann Hauksson í Körfuboltakvöldi. „Mér fannst hann meira hvetjandi. Þegar að hann var að skora körfur sá maður það á svipnum hjá honum að það væri mikil einbeiting til staðar. Þegar að Grindavík vantaði körfu þá fór það í gegnum hann. Annað hvort var hann að setja niður körfur eða búa þær til.“ Alvöru vopn fyrir Grindavík. „Þessi Kane er stórhættulegur. Þetta er sá Kane sem Grindavík þarf til þess að taka næsta skref.“ Umræðuna um DeAndre Kane í Körfuboltakvöldi í heild sinni má sjá hér fyrir ofan.
Bónus-deild karla Grindavík Körfuboltakvöld Mest lesið „Stoltur af henni og hún á þetta mjög mikið skilið“ Sport Úrvalsdeildarfélög undirbúa málsókn gegn City Sport Haaland mætir ekki í viðtal eftir tíðindi dagsins Sport „Getum ekki mætt í neinn leik og leyft okkur að slaka á“ Sport Celtic og Rangers áfrýja Sport Internetið gerir grín að Caleb Williams Sport „Höfum talað digurbarkalega um það“ Fótbolti „Sagði bara við hann, ég skal taka þetta“ Sport Nafnarnir í KA sáu um Val Sport Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Sjá meira