Handbolti

Sara Dögg í miklum ham er ÍR styrkti stöðu sína

Aron Guðmundsson skrifar
Sara Dögg Hjaltadóttir skoraði tíu mörk í leik dagsins.
Sara Dögg Hjaltadóttir skoraði tíu mörk í leik dagsins. vísir/Diego

ÍR hafði betur gegn KA/Þór í leik liðanna í 19.umferð Olís deildar kvenna í handbolta í dag. Lokatölur urðu 32-28, fjögurra marka sigur ÍR sem styrkir stöðu sína í fjórða sæti deildarinnar.

ÍR var alltaf einu skrefi á undan KA/Þór í leik dagsins og leiddi með þremur mörkum eftir fyrri hálfleikinn 16-13. 

Norðankonur gerðu gott áhlaup þegar að rétt rúmar tíu mínútur eftir lifðu leiks og tókst að koma muninum á milli liðanna niður í eitt mark í stöðuna 24-23 en nær komust gestirnir þó ekki.

Lokatölur urðu 32-28, ÍR í vil. Með sigrinum fer ÍR nú í 22 stig og styrkir stöðu sína í fjórða sæti deildarinnar þar sem að Fram, sem vermir fimmta sætið, tapaði fyrr í dag gegn toppliði Vals. KA/Þór er í sjötta sæti deildarinnar með fimmtán stig. 

Sara Dögg Hjaltadóttir fór mikinn í liði ÍR í dag og skoraði tólf mörk í fjórtán skotum á meðan að Sólveig Lára Kristjánsdóttir var markahæst í liði KA/Þór með sex mörk. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×