Hvað gerist ef meirihlutinn segir „já“ í sumar? Jón Pétur Zimsen skrifar 14. mars 2026 07:01 Verði niðurstaðan í þjóðaratkvæðinu í sumar „já“ hefst í kjölfarið aðlögun Íslands að öllu regluverki Evrópusambandsins og stjórnsýslu þess strax í september. Þetta kemur ekki aðeins fram í öllum gögnum ESB heldur einnig í sjálfri greinargerðinni með þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðið þó hún hafi haldið því fram að einungis yrði um einfalt kaffispjall að ræða. Þar segir: „Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum.“ Kjósendur fá ekki að koma að málinu og kjósa um samning verði niðurstaðan „já“ fyrr en þetta verður orðinn hlutur. Það væri ekki verið að kíkja í pakka, pakka sem allir vita hvað er í. Heldur væri byrjað að aðlaga og breyta lögum okkar, regluverki og stjórnsýslu samhliða viðræðum. Í spurt og svarað á veg ESB segir til dæmis: „Upptaka og innleiðing regluverksins er grundvöllur viðræðnanna. […] Hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. […] Markmið viðræðnanna er að umsóknarríkið taki upp regluverkið eins og það leggur sig.“ Það er einnig mat ESB að íslensk stjórnsýsla sé of veikburða og hana þurfi að stórauka samhliða aðlögun frá september 2026. Þenja báknið út. Ekkert umsóknarríki hefur fengið varanlegar undanþágur frá regluverki ESB til dæmis með tilliti til landbúnaðar og sjávarútvegs. Hægt er að semja um aðlögunartíma en engar varanlegar undanþágur frá yfirstjórn ESB hversu oft sem utanríkisráðherra heldur öðru fram. Fyrri kynslóðir Íslendinga börðust með kjafti og klóm fyrir fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar, mestu gersemum hverrar þjóðar. Valdinu til þess að ráða eigin málum. Því vill ríkisstjórnin kasta á glæ. Helgi Hallvarðsson og Albert Jónsson, skipstjórar á varðskipum Landhelgisgæslunnar, gátu í krafti þess að Ísland er fullvalda ríki barist gegn ofureflinu með togvíraklippur einar að vopni í Þorskastríðinu. Hvað myndu þeir segja um blæti ríkistjórnarinnar fyrir því að selja fullveldið og sjálfstæðið til erlends ríkjasambands? Hvað hafa ríkin í ESB okkur að bjóða? Okkur sem erum ein ríkasta þjóð Evrópu, með tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin og fleiri tugi fríverslunarsamninga við ríki um allan heim, bæði á eigin vegum og í gegnum Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA)? Í Þýskalandi er raforkuverð um fimm sinnum dýrara en á Íslandi og efnahagsleg stöðnun hefur ríkt lengi eins og víða innan ESB. Í Frakklandi fer um 14–15% af allri landsframleiðslu í lífeyriskerfið, eitt hæsta hlutfall í heimi, ríkisskuldir eru yfir 110% af landsframleiðslu og atvinnuleysi ungs fólks um 17–18%. Á Spáni er nær þriðja hver ung manneskja atvinnulaus. Um 70% ungs fólks býr enn í foreldrahúsum þrátt fyrir lægri vexti en á Íslandi enda húsnæði í Evrópu dýrt, atvinnuleysi mikið og laun lág. Lágir vextir í Evrópu eru ekki merki um sterkt hagkerfi heldur oft merki um hagkerfi sem þarf stöðugt á örvun að halda. Er það þetta sem við viljum fá í skiptum fyrir fullveldi okkar og sjálfstæði, auðlindir og gæði? Gera vandamál annarra ríkja að okkar? „Já“ í sumar mun kalla á fulla aðlögun Íslands að regluverki og stjórnsýslu ESB strax. Aðlögun væri lokið þegar þjóðin fengi að greiða atkvæði um samning sem mun ekki innihalda neitt sem ekki var vitað fyrir. Stöndum með Íslandi. Stöndum með lýðræðinu og fullveldinu. Og varðveitum það fyrir komandi kynslóðir. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Pétur Zimsen Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar