Fyrsta tapið á tímabilinu og Almar þarf nú að bíða og vona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2026 07:30 Almar Orri Atlason í leik með íslenska körfuboltalandsliðinu á síðasta Evrópumóti. Getty/ Marcin Golba Það var stutt gaman hjá Almari Orra Atlasyni og félögum í Miami-skólanum í úrslitakeppni Mid-American Conference-deildarinnar.
Miami-liðið féll á fyrsta prófi í úrslitakeppninni þegar liðið tapaði með fjórum stigum á móti UMass, 87-83. Þetta var fyrsta tap Miami-strákanna á tímabilinu en þeir unnu alla leiki sína í deildarkeppninni, 31 talsins, einir liða í bandaríska háskólaboltanum. Tapið þýðir að Miami-skólinn sat eftir í átta liða úrslitum og á því ekki möguleika á því að vinna Mid-American Conference-deildina sem gefur sjálfkrafa sæti í úrslitakeppni háskólaboltans, svokölluð Marsfári. "I do not think the committee at this point will set the new precedent of keeping a team that has 1 loss to their name on Selection Sunday OUT of the NCAA Tournament."@Chip_Patterson on Miami (OH) after its loss to UMass. pic.twitter.com/qGxurR2KfB— CBS Sports College Basketball 🏀 (@CBSSportsCBB) March 12, 2026 Sigurganga Miami hjálpar liðinu í því að fá sæti í úrslitakeppninni en líkurnar eru nú mun minni eftir þetta tap. Miami var fyrsta liðið síðan Gonzaga tímabilið 2020–21 til að fara taplaust inn í úrslitakeppni deildar sinnar. „Strákarnir okkar hafa að mínu mati áunnið sér rétt til að spila í NCAA-mótinu,“ sagði Travis Steele, þjálfari Miami, við fréttamenn eftir leikinn. Miami-strákarnir spiluðu átta leiki á venjulegu leiktímabili sem unnust eða töpuðust með einni körfu, þar á meðal síðustu þrjá leikina fyrir MAC-mótið. "Miami (Ohio) as of right now is safely in the NCAA Tournament."@JonRothstein explains what could unfold before Selection Sunday that could affect the RedHawks bid for the NCAA Tournament. pic.twitter.com/1o0PT5KJ05— CBS Sports College Basketball 🏀 (@CBSSportsCBB) March 12, 2026 Einhver vafi lék á því hvort Miami fengi sæti í mótinu án þess að vinna deildarmótið. Þær raddir þögnuðu eftir sigur á Ohio í síðasta deildarleiknum síðasta föstudag en gætu látið í sér heyra aftur eftir þetta. Almar Orri lék í þrettán mínútur í leiknum og skilaði á þeim fimm stigum en hann hitti þó aðeins úr einu af fimm þriggja stiga skotum sínum og var með ekkert annað en stig (5), skot (6) og villur (4) á tölfræðiblaðinu. View this post on Instagram A post shared by ESPN BET (@espnbet)
Bandaríski háskólakörfuboltinn Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Haraldur Franklín nálgast Opna breska Golf Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira