Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Kjartan Kjartansson skrifar 12. mars 2026 14:59 Undir stjórn René Redzepi varð Noma á tímabili talinn einn besti veitingastaður heims. Honum þykir eflaust súrt í broti að þurfa að stíga til hliðar eftir tæplega aldarfjórðungs starf. AP/Sören Bidstrup/Ritzau René Redzepi, stofnandi danska veitingastaðarins Noma, er hættur hjá fyrirtækinu í kjölfar ásakana um að hann hafi beitt starfsmenn andlegu og líkamlegu ofbeldi. Noma þótti um skeið einn besti veitingastaður í heimi.
Ásakanir starfsfólks á hendur Redzepi voru raktar í löngu máli í umfjöllun bandaríska stórblaðsins New York Times á dögunum. Þær urðu til þess að bakhjarlar tímabundins veitingastaðar Noma í Los Angeles þvoðu hendur sínar af honum. Redzepi tilkynnti tárvotur í samfélagsmiðlafærslu í dag að hann ætlaði að axla ábyrgð á gjörðum sínum með því að hætta hjá Noma. „Ég hef unnið í því að verða betri leiðtogi og Noma hefur tekið stór skrem fram á við í vinnustaðamenningu síðustu árin. Ég geri mér grein fyrir að þær breytingar bæta ekki upp fyrir fortíðina. Afsökunarbeiðni er ekki nóg. Ég tek ábyrgð á eigin gjörðum,“ segir Redzepi. Á meðal þess sem fyrrverandi starfsmenn Noma sökuðu Redzepi um var að hafa ausið yfir þá skömmum og jafnvel beitt þá ofbeldi. Einn þeirra sagði Redzepi hafa kýlt sig í andlitið. Redzepi stofnaði Noma árið 2003 og varð staðurinn leiðandi í svonefndri nýrri norrænni matargerð sem vakti mikla athygli á sínum tíma. Noma var útnefndur besti veitingastaður í heimi fimm sinnum. Margrét, þáverandi Danadrottning, aðlaði Redzep árið 2016.
Danmörk Veitingastaðir Tengdar fréttir Loka Noma og snúa sér að matvælaframleiðslu Eigendur danska veitingastaðarins Noma hafa ákveðið að loka honum, að minnsta kosti tímabundið og snúa sér að matvælaframleiðslu í staðinn. Noma hefur lengi verið talinn besti eða einn af bestu veitingastöðum heims. 9. janúar 2023 12:27 Mest lesið Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent Réðst að hópi drengja í sundlaug Innlent Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Erlent „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Innlent Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Erlent Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Innlent Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Innlent Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Erlent Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Innlent Fleiri fréttir Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Sjá meira
Loka Noma og snúa sér að matvælaframleiðslu Eigendur danska veitingastaðarins Noma hafa ákveðið að loka honum, að minnsta kosti tímabundið og snúa sér að matvælaframleiðslu í staðinn. Noma hefur lengi verið talinn besti eða einn af bestu veitingastöðum heims. 9. janúar 2023 12:27