Formúla 1

Ráð­þrota Verstappen vonast til að For­múlan „verði skemmti­legri“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Max Verstappen er á barmi keppnisbanns.
Max Verstappen er á barmi keppnisbanns. Clive Rose/Getty Images

Max Verstappen segist óska þess að Formúla 1 væri „skemmtilegri“. Miklar breytingar á reglugerð um bíla hefur ollið fjaðrafoki í upphafi nýhafins tímabils. Verstappen er vongóður um breytingar til hins betra.

Breytingarnar sem hafa hvað mest áhrif á ökuþórana hafa með nýjar vélar. Rafknúni hluti vélarinnar var aukinn og er nú skipt 50-50 milli brunahreyfils og rafknúna hlutans. Áður var vægi brunahreyfilsins meiri.

Þetta hefur þær afleiðingar að ökuþórar þurfa að beita nýjum og ef til vill óvenjulegum aðferðum við akstur til að þeir hafi næga hleðslu á rafhlöðinni til að hámarka afköst.

Verstappen, fjórfaldur heimsmeistari sem ekur fyrir Red Bull, er á meðal fjölmargra ökuþóra í Formúlu 1 sem þykir ný hönnun bílanna og orkuhluta bílsins draga úr ánægju þess að keppa í bestu aksturskeppni heims.

„Ég er svolítið ráðþrota, því ég hef ekki mikla ánægju af að keyra bílinn en ég hef gaman af að vinna með liðinu,“ sagði Verstappen hjá Red Bull.

„Ég vil ekki yfirgefa [Formúlu 1] en ég vona auðvitað líka að þetta batni. Ég hef átt viðræður við Formúlu 1 og [stjórnarsamtökin] FIA og við erum að vinna að einhverju sem vonandi mun bæta allt.“

Yfirmenn Formúlu 1 samþykktu upphaflega að fara yfir reglurnar eftir fyrstu þrjár keppnir tímabilsins og greina hvort gera þurfa á þeim breytingar.

Nú virðist möguleiki á að breytingar verði gerðar strax eftir keppnina í Kína um helgina, sem er sú önnur á tímabilinu eftir fyrsta kappaksturinn í Ástralíu á sunnudaginn var.

Formúlu 1 keppni helgarinnar fer fram í Sjanghæ í Kína. Sýnt verður frá öllu því helsta á Sýn Sport Viaplay. Dagskráin er eftirfarandi:

  • 13. mars (í nótt)
  • 03:30 Æfing 1
  • 07:30 Tímataka fyrir sprettkeppni
  • 14. mars (aðfaranótt laugardags)
  • 03:00 Sprettkeppni
  • 06:45 Tímataka fyrir kappakstur
  • 15. mars (aðfaranótt sunnudags)
  • 06:30 Sjanghæ-kappakstur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×