Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 12. mars 2026 11:01 Úr myndavél Vegagerðarinnar. Vegagerðin Veginum um Súðavíkurhlíð verður lokað hálf tólf en klukkan ellefu höfðu alls sex snjóflóð fallið á veginn. Erfið færð er um veginn. Einnig hafa fallið snjóflóð í fjallinu fyrir ofan Flateyri. „
Þau eru að falla núna, það eru komin sex snjóflóð sem ná alveg yfir veginn,“ segir Emil A. Sigurðsson, vaktstjóri á vaktstöð Vegagerðarinnar á Vestfjörðum. Nú stendur yfir vinna við að koma öllum af veginum og verður honum svo lokað klukkan hálf 12. Enginn hefur orðið undir snjóflóði. Þá verður Ísafjarðardjúp ekki mokað. „Það er bæði erfið færð þar og svo dettur niður tilgangur þegar Súðavíkurhlíð er lokuð.“ Emil bendir einnig á að Dynjandisheiði gæti lokað með skömmum fyrirvara. Henni verður lokað að loknum þjónustutíma, jafnvel fyrr. Gular veðurviðvaranir eru í gildi á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og í Breiðafirði. Klukkan sex í kvöld fer einnig gul veðurviðvörun í gildi á Faxaflóa. Heiður Þórisdóttir, sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir í samtali við fréttastofu að þau hafi orðið vör við tvö snjóflóð nærri Flateyri, annað í Skolahvilft og í Innra-Bæjargili. Þau hafi ákki áhyggjur af byggð þar sem hún er vel varin með görðum. „Flateyravegurinn er kominn á þetta svokallaða stig þrjú sem þýðir að það sé aukin snjóflóðahætta. Vegurinn er ennþá opinn en mikilvægt að vegfarendur fari varlega,“ segir hún. „Það er erfitt skyggni þannig að við fáum örugglega ekkert mikið af flóðafréttum fyrr en birti til á morgun.“ Hægt er að fylgjast með færð á vegum á vefsíðu Vegagerðarinnar, umferðin.is. Fréttin hefur verið uppfærð.
Súðavíkurhreppur Færð á vegum Veður Snjóflóð á Íslandi Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Endurskoða samning SÁÁ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Fleiri fréttir Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Þetta var rétt ákvörðun“ Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Litlar breytingar þrátt fyrir lagabreytinguna Pawel leggur frumvarp Gríms um netsölu áfengis fram á ný Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Sjá meira