„Ágætis líkur á því að færð spillist“ Kjartan Kjartansson skrifar 11. mars 2026 10:50 Færð tekur væntanlega að spillast á norðvestanverðu landinu í óveðri á morgun. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Gular viðvaranir hafa verið gefnar út vegna norðan hríðar við Breiðafjörð, á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra á morgun fram á föstudag. Vegagerðin segir líklegt að færð spillist á fjallvegum seint á morgun.
Spáð er norðan og norðvestanátt með snjókomu og skafrenningi á öllu landinu norðvestanverðu. Vindhraði gæti náð allt að tuttugu metrum við Breiðafjörð og á Vestfjörðum. Fyrsta gula viðvörunin tekur gildi á Vestfjörðum klukkan sex í fyrramálið. Sambærilegar viðvaranir verða komnar í gildi við Breiðafjörð og á Norðurlandi vestra skömmu síðar. Við Breiðafjörð gildir viðvörunin til klukkan þrjú aðfararnótt föstudags en fram á morgun á Vestfjörðum og á Norðurlandi vestra. Færð er þegar orðin erfið víða á heiðum um norðanvert landið. Vegagerðin segir blint í snjókomu og akstursskilyrði erfið. Á morgun bæti í vindinn og snjói áfram. „Næsta sólarhringinn er vetrarfæri um eiginlega allt norðanvert landið. Síðan í fyrramálið bæti í vind, einkum á Vestfjörðum, og þar er kominn svolítill snjór nú þegar og svo snjóar áfram. Það gæti orðið blint og þegar líð ur á daginn bætist við frekari vindur og þá eru ágætis líkur á því að færð spillist,“ sagði Daníel Þorláksson, veðurfræðingur hjá Vegagerðinni í samtali við fréttastofu. Staðan verði verst á Vestfjörðum og líklegt sé að ferð spillist á fjallvegum á Vestfjörðum seint á morgun, til dæmis á Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum og Klettshálsi. „Það er einhvern tímann tímann eftir hádegi sem færðin verður orðin að þyngslum. Það er um að gera ef maður er að huga í langferðir á morgun, að athuga umferðin.is hver færðin er, hvernig þetta lítur út“ bætti Daníel við.
Veður Færð á vegum Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Fleiri fréttir „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Þetta var rétt ákvörðun“ Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Litlar breytingar þrátt fyrir lagabreytinguna Sjá meira