Formúla 1

Tækluðu spurningu sem brennur á öllum eftir fyrstu keppni tíma­bilsins

Aron Guðmundsson skrifar
Staða Ferrari var afar góð á fyrstu hringjum ástralska kappakstursins um nýliðna helgi
Staða Ferrari var afar góð á fyrstu hringjum ástralska kappakstursins um nýliðna helgi Vísir/Getty

Þeir Kristján Einar Kristjánsson og Bragi Þórðarson, Formúlu 1 lýsendur og umsjónarmenn hlaðvarpsins Pitturinn, veltu því fyrir sér hvort að með annari keppnisáætlun hefði Ferrari geta unnið fyrstu keppni tímabilsins í Ástralíu.

Fyrsta keppnishelgi tímabilsins fór fram í Albert Park í Ástralíu um nýliðna helgi og þar var það lið Mercedes sem hrósaði sigri en aðalökuþór liðsins George Russell endaði í fyrsta sæti og liðsfélagi hans Andrea Kimi Antonelli í því öðru á undan Ferrari ökuþórunum tveimur.

Stafrænn öryggisbíll var settur á ellefta hring kappakstursins. Þá var Charles Leclerc, ökuþór Ferrari í fyrsta sæti með George Russel hjá Mercedes fyrir aftan sig og liðsfélaga sinn Lewis Hamilton í þriðja sæti. 

Báðir bílar Mercedes fóru inn á þjónustusvæðið undir stafræna öryggisbílnum en Ferrari kaus að kalla hvorugan af sínum ökuþórum inn á þjónustusvæðið. 

Yfirburðir Mercedes í keppninni voru miklir og er ljóst að liðið er með besta bílinn í upphafi keppnistímabilsins en gullna spurningin eftir keppni var sú hvort að Ferrari, með því að kalla inn annan eða báða af ökuþórum sínum á þjónustusvæðið á svipuðum tíma og Mercedes, hefðu geta unnið keppni helgarinnar? 

Sú spurning var tækluð í Pittinum af þeim Kristjáni Einari og Braga Þórðar. 

„Þeir hefðu allavegana geta átt séns,“ sagði Kristján Einar. Með því að stoppa á svipuðum tíma og Mercedes, undir stafrænum öryggisbíl hefðu líkur Charles Leclerc, ökuþór Ferrari, á sigri aukist. „Hann hefði farið úr núll prósent sigurlíkum upp í svona þrjátíu prósent sigurlíkur.“

Bragi var á svipuðum nótum en taldi líkur Ferrari á sigri ekki geta hafa verið svona miklar.

„Ég var að pæla í þessu. Mín kenning er sú að það sé til sá veruleiki að Leclerc hefði geta unnið þessa keppni með því að stoppa á svipuðum tíma og Mercedes. En þó þeir hefðu stoppað þá hefði ég talið svona eins til átta prósent líkur að hann hefði unnið keppnina. Russell á Mercedes bílnum hefði verið í rassgatinu á honum allan tímann“

Ferrari hefði allavegana átt að kalla annan af sínum ökuþórum inn á þjónustusvæðið í þjónustuhlé og taka þar Pittsbræður undir óánægju Lewis Hamilton, reynsluboltans í liði Ferrari sem kallaði eftir því að slíkt yrði gert.

Umræðu Kristjáns Einars og Braga Þórðar í Pittinum um Ástralíu kappaksturinn, fyrstu keppni tímabilsins í Formúlu 1, má hlusta á í heild sinni hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×