„Enn önnur ömurlega lygasagan um mig“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 10. mars 2026 16:12 Daryl Hannah og JFK Jr. árið 1993 þegar allt lék í lyndi. Mitchell Gerber/Corbis/VCG via Getty Images Sjónvarpsþættirnir Love Story hafa notið mikilla vinsælda undanfarið og segja frá ástarsögu JFK Jr. og Carolyn Bessette Kennedy, sem voru gríðarlega ástfangin en féllu frá langt fyrir aldur fram. Tískuunnendur bíða margir spenntir eftir hverjum þætti en aðrir eru mjög ósáttir við seríuna. Má þar nefna að Darryl Hannah, fyrrverandi kærasta JFK Jr., er ekki par sátt við karakter sinn í seríunni.
Holdgervingur hins stílhreina töffara Þættirnir eru hugarfóstur Ryan Murphey sem hefur framleitt ótal margar vinsælar sjónvarpsseríur á borð við Glee og American Horror Story. Margir eru dolfallnir yfir einstökum stíl Carolyn í þáttunum en hún starfaði lengi hjá tískuhúsinu Calvin Klein í New York og er einhvers konar holdgervingur hins stíl hreina töffara tíunda áratugarins. Darryl Hannah og JFK Jr. áttu í ástarsambandi af og á í mörg ár og verður að segjast að Murphey reynir ekki að gera henni hátt undir höfði í þáttunum. Hannah, sem var fræg leikkona á tíunda áratuginum og hefur meðal annars leikið í Kill Bill, er mjög ósátt og hefur gefið út yfirlýsingu. Aldrei haldið kókaín partý Hannah hefur aldrei tjáð sig opinberlega um ástarsamband sitt og JFK Jr, en hann var sonur ástsæla Bandaríkjaforsetans Johns F. Kennedy. Hún rauf þögnina nýverið með pistli í New York Times tímaritið þar sem hún skrifar meðal annars: „Karakterinn Daryl Hannah sem er í seríunni er ekki að neinu leyti rétt framsetning á mér, mínu lífi, minni hegðun eða mínu sambandi við John. Gjörðir og hegðun sem er tengd við mig í þáttunum eru ósannir.“ Hún segist fram að þessu alltaf hafa hunsað neikvæða umræðu í sinn garð en getur ekki setið á sér núna. „Það var engin tilviljun að þau sýna mig sem pirrandi, sjálfhverfa, vælandi og óviðeigandi,“ segir Hannah sár og segir að fjölda mörg atriði úr seríunni séu hreinn uppspuni. „Ég hef aldrei í lífi mínu notað kókaín eða haldið kókaín partý. Ég hef aldrei þvingað neinn í hjónaband. Ég hef aldrei troðið mér í lokaða jarðaför þar sem ég var ekki velkomin.“ Hér má sjá sögulega senu af Hannah blístra í Kill Bill: Þögnin ekki samþykki við lygarnar Hún segir þetta enn aðra ömurlegu lygasöguna um sig. „Ég hef þurft að heyra alls konar ömurlegar lygasögur um sjálfa mig og ótrúlega óaðlaðandi „staðhæfingar“ um minn karakter í fortíðinni. Ég ákvað að hunsa það eins og ég gat og einblína á vinnuna mína og ástvini. Mér finnst virðingavert gagnvart fólkinu mínu að halda einkalífinu mínu prívat. En þögn mín á aldrei að vera misskilin sem eitthvað samþykki við öllum þessum lygum,“ skrifar hún að lokum.
Hollywood Bíó og sjónvarp Mest lesið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Lífið Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Lífið Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Lífið Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Lífið Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Tónlist Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Lífið Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Lífið Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Tónlist „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Lífið Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Sjá meira