Veikt flutningskerfi er sóun á náttúruauðlindum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar 9. mars 2026 16:00 Flutnings- og dreifikerfi raforku eru meðal allra mikilvægustu innviða nútímasamfélags. Takmörkuð flutningsgeta hefur bein áhrif á heimili og fyrirtæki um allt land, leiðir til hærri raforkukostnaðar, tapaðra útflutningstekna og verri nýtingar á þeirri orku sem þegar er framleidd. Afleiðingarnar koma oft harðast niður á dreifðari byggðum landsins, þar sem raforkukerfið er viðkvæmara og tengingar veikari. Þar hefur skortur á flutningsgetu áhrif á atvinnuuppbyggingu, rekstrarkostnað fyrirtækja og lífskjör almennings. En styrking flutningskerfisins er ekki aðeins efnahagslegt og byggðapólitískt verkefni. Hún er líka umhverfismál. Virkjanir valda alltaf umhverfisraski og eru sjaldan óumdeildar. Þess vegna skiptir öllu máli að nýta orkuna frá þeim virkjunum sem þegar hafa verið byggðar eins vel og kostur er. Veikt flutningskerfi er í raun sóun á náttúruauðlindum og því umhverfisraski sem þegar hefur átt sér stað. Með styrkingu flutningskerfisins nýtum við núverandi orkukerfi betur og drögum úr þörfinni fyrir nýjar virkjanir. Eignarréttinum verður ekki raskað Nýlega kynnti ég áform í Samráðsgátt um breytingar á raforkulögum sem miða að því að flýta og liðka fyrir framkvæmdum vegna flutnings- og dreifiinnviða raforku. Tillagan felur í sér að sú ófrávíkjanlega krafa verði felld brott að samkomulag hafi náðst eða eignarnám farið fram áður en framkvæmdir geta hafist. Þess í stað verði heimilt að hefja framkvæmdir samhliða samningaviðræðum eða eignarnámsferli, að uppfylltum skýrum skilyrðum og gegn tryggingu. Í núverandi regluumhverfi geta deilur um bótafjárhæðir tafið uppbyggingu flutningskerfisins um mörg ár, jafnvel þegar ekki er ágreiningur um nauðsyn framkvæmdarinnar sjálfrar. Slíkar tafir geta haft verulegan kostnað í för með sér og skapað óvissu um mikilvæga innviði samfélagsins. Eignarrétturinn er friðhelgur og nýtur verndar samkvæmt 72. gr. stjórnarskrárinnar. Engin áform eru uppi um að hrófla við honum. Skilyrðin um almenningsþörf og fullar bætur haldast óbreytt. Landeigendur munu áfram eiga rétt á fullum bótum fyrir land eða réttindi sem tekin eru eignarnámi, þar með talið bætur fyrir sannanlegt tjón og óbein áhrif, svo sem sjónræn áhrif á fasteignir. Meðalhófsregla stjórnsýsluréttarins og rannsóknarskylda stjórnvalda halda gildi sínu. Stjórnvöld munu áfram þurfa að sýna fram á almenningsþörf, að framkvæmd sé nauðsynleg og að vægari úrræði hafi verið skoðuð. Þá verður auðvitað rétturinn til að leita úrlausnar dómstóla óskertur. Í samræmi við heimildir í fjarskiptalögum og réttarþróun í nágrannalöndum Það sem er verið að leggja til að breyta er fyrst og fremst tímasetning framkvæmdarinnar, ekki rétturinn til bóta. Tillagan byggir á meginreglum laga um framkvæmd eignarnáms, þar sem heimilt er að taka land til umráða gegn tryggingu meðan bótamál eru til meðferðar. Með því að skýra þessa heimild sérstaklega í raforkulögum er markmiðið að eyða óvissu og samræma reglur um mikilvæga innviði samfélagsins. Sambærileg framkvæmd hefur þegar verið lögfest í fjarskiptalögum hér á landi. Í nágrannalöndum okkar gilda einnig svipaðar reglur, meðal annars í Svíþjóð og Danmörku, og hefur réttarþróun í Evrópu verið í þessa átt. Markmiðið er ekki að veikja rétt einstaklinga heldur að tryggja að ágreiningur um bótafjárhæðir stöðvi ekki uppbyggingu innviða sem eru nauðsynlegir fyrir raforkuöryggi landsmanna. Sterkari flutnings- og dreifiinnviðir eru forsenda þess að við getum tryggt jafnt aðgengi að raforku um allt land og nýtt betur orkuna frá þeim virkjunum sem þegar hafa verið byggðar. Með því bætum við lífsgæði, styrkjum innviði samfélagsins og nýtum náttúruauðlindir landsins með ábyrgari hætti. Höfundur er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jóhann Páll Jóhannsson Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar