Handbolti

Bein út­sending: Fyrsti fundur Snorra eftir EM

Sindri Sverrisson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson og Björgvin Páll Gústavsson sitja fyrir svörum á fundinum í dag.
Snorri Steinn Guðjónsson og Björgvin Páll Gústavsson sitja fyrir svörum á fundinum í dag. vísir / vilhelm

Vísir er með beina útsendingu frá blaðamannafundi HSÍ þar sem landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson og landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson fara yfir ýmis mál. Fram undan eru leikir við Svía í hefndarhug.

Fundinn má sjá í spilaranum hér að neðan en hann á að hefjast um klukkan 12:15.

Um er að ræða fyrsta blaðamannafund Snorra eftir EM í janúar. Hann hefur átt í viðræðum við HSÍ um að framlengja samning sinn en núgildandi samningur rennur út í vor.

Á fundinum mun Snorri kynna leikmannahópinn sem mætir Svíum í komandi vináttulandsleikjum hér á landi og fara yfir næstu verkefni landsliðsins sem keppa mun á HM í Þýskalandi í byrjun næsta árs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×