Deilur Bríetar og Pálma smitast yfir á síðu Zöru Larsson Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. mars 2026 14:03 Deilur Bríetar og Pálma Ragnars birtust óbeint á Instagram-færslu Zöru Larsson þegar Ásgeir Orri, bróðir Pálma, eignaði Pálma tónlist Bríetar og Íris Lóa, hárstílisti Bríetar, svaraði honum. Vísir/Vilhelm/Instagram/Spotify Deilur milli tónlistarkonunnar Bríetar Isis Elfars og framleiðandans Pálma Ragnars Ásgeirssonar, sem fara bráðum fyrir dómara, hafa smitast yfir á netið og eru óvænt hluti af kommentakerfi Instagram-færslu sænsku poppstjörnunnar Zöru Larsson.
Eftir að hafa horfið í nokkur ár er Zara Larsson snúin aftur á vinsældarlista með lagið „Midnight Sun“ af samnefndri plötu og hefur hún fylgt henni eftir með tónleikaferðalagi um heiminn. Á föstudaginn birti hún færslu á Instagram af litríkum þúsaldarskotnum farða sínum af ferðalaginu og undir myndaröðinni ómaði lagið „Draumalandið“ eftir Bríeti af plötunni Kveðja, Bríet. „Gella! Þú ert að nota mitt lag! Litla Bríet er að öskra núna,“ skrifaði Bríet í athugasemd við myndina og uppskar fjölda læka frá fólki á borð við Áslaugu Örnu, Magnúsi Jóhanni, Gugusar og Zöru Larsson sjálfri. View this post on Instagram A post shared by Zara Larsson (@zaralarsson) Ekki nóg með það heldur svaraði Zara henni líka: „Ég er búin að vera að hlusta svo mikið á þig!!!!! Mikill aðdáandi!!!“ Bríet deildi mynd af svari Zöru í hringrás sinni í morgun og öðru skjáskoti af því að Zara væri byrjuð að fylgja henni á gramminu. Tagg, komment og follow. Annað sem vekur athygli á færslunni er að pródúsentinn Ásgeir Orri Ásgeirsson, sem er þekktastur sem einn þriggja meðlima StopWaitGo, skrifar ummæli við færslu Zöru. „Þetta lag er skrifað og framleitt af @palmiragnar ✍🏻💪🏼 Þú ættir að heyra í honum! 🎉,“skrifar hann og taggar bróður sinn, Pálma Ragnar Ásgeirsson, sem starfaði náið með Bríeti um árabil og hefur jafnframt unnið mikið með Friðriki Dór, Glowie og Diljá Pétursdóttir. Hársnyrtirinn Íris Lóa Eskin, sem hefur séð um hárið á Bríeti frá því hún byrjaði á bransanum, sá sér skylt að svara Ásgeiri og leiðrétta hann örlítið: „@asgeirorri, þú meinar skrifað af Bríeti og framleitt af honum ❤️❤️❤️❤️❤️❤️❤️“ Bríet og Pálmi unnu náið saman frá 2018 til 2022 og gáfu út á því tímabili hátt í tuttugu lög sem þau sömdu í sameiningu. Þar á meðal eru öll lögin nema eitt af plötunni Kveðja, Bríet, öll lögin af stuttskífunni 22.03.99 og nokkrar smáskífur. Þar eru Bríet og Pálmi bæði skráð sem textahöfundar og Pálmi skráður sem framleiðandi. Heimildir Vísis herma að þau hafi nú stefnt hvort öðru fyrir dómstólum vegna ósættis um höfundarrétt áðurnefndra laga. Málið hefur verið tekið fyrir þrisvar í Héraðsdómi Reykjavíkur og verður næst tekið fyrir miðvikudaginn 11. mars. Ekki liggur fyrir hvenær aðalmeðferð málsins hefst.
Tónlist Samfélagsmiðlar Dómsmál Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira