Handbolti

Sigur­jón með 61 prósent mark­vörslu í norsku deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sigurjón Guðmundsson var frábær í marki Kolstad í kvöld.
Sigurjón Guðmundsson var frábær í marki Kolstad í kvöld. Kolstad Håndball

Sigurjón Guðmundsson lokaði markinu í norsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag þegar Kolstad vann stórsigur á Sandnes á útivelli.

Kolstad vann leikinn á endanum með 24 marka mun, 40-16, eftir að hafa verið sex mörkum yfir í hálfleik, 16-10.

Sigurjón var frábær í marki Kolstad en hann varði 11 skot og fékk aðeins á sig sjö mörk. Hann var því með 61 prósent markvörslu. Sigurjón átti líka eina stoðsendingu.

Hinn markvörður Kolstad, Nicolai Neupart, varði þrjú skot og var aðeins með 25 prósent markvörslu.

Sigvaldi Björn Guðjónsson var með sex mörk úr sex skotum og Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði eitt mark og gaf fjórar stoðsendingar.

Kolstad er í öðru sæti deildarinnar eftir þriðja deildarsigurinn í röð, fjórum stigum á eftir toppliði Elverum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×