„Pólitíkin ræður“ Anna Sofía Kristjánsdóttir skrifar 8. mars 2026 13:32 Ég mætti á ársfund Landsvirkjunar 3. Mars síðastliðinn, af einskærri forvitni um framtíðarplön fyrirtækis okkar landsmanna. Yfirskrift ársfundarins var „Orkueyjan“. Nafnið var lýsandi fyrir innihald fundarins – að undirbúa Ísland undir orkufrekan iðnað. Mér leið eins og ég væri stödd aftur á árinu 2007 þegar framkvæmdagleðin var í hæstu hæðum með tilheyrandi útþennslu á hagkerfinu. Framtíðarsýnin er að hámarka verðmæti orkulinda og samkeppnishæfni á erlendum mörkuðum á hraða ljóssins. Orkan er lífæð arðsemi, meiri uppbygging þýðir meiri peninga í ríkissjóð. Til þess að skapa þessi „verðmæti“ þurfum við að leggja fram fórnir. Fjárhagslega arðbærar framkvæmdir er aðalatriðið og verða náttúruverndarsinnar að sætta sig við það. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Jóhann Páll talaði um miklar breytingar. Hann er með mörg frumvörp í gangi sem munu fara fyrir þing á næstu mánuðum. Markmið Jóhanns er að ryðja burt hindrunum með lagasetningu. Afnema neitunarvald landeigenda, einfalda leyfisferlið ogeinfalda regluverkið í rammaáætlun með færri og styttri umsagnarferli. Með þessum breytingum er verið að minnka möguleika á andmælum og landeigiendur geta ekki lengur stoppað framkvæmdir. Jóhann Páll tilkynnti að „pólitíkin ræður“. Orkumálaráðherrann fór offörum. Hann minnti helst á Míní-Pútín sem fengið hefur völdin í hendur frá kommúnistaflokknum þar sem fyrsta verkefnið er að skerða lýðræðislegan rétt þegnanna. Það má með sanni segja að umhverfis- orku- og loftslagsráðherra stendur ekki undir nafni. Það má þurrka út nafngiftina umhverfis- og loftslagsráðherra. Neitunarvaldið virkar í Noregi. Vindorkan eyðileggur náttúru, viskerfi og heilsu manna og dýra og það er nóg til að stoppa orkuvæðinguna í náttúrunni. Þetta er lýðræðislegur réttur sem Jóhann Páll ætlar að fjarlægja með lögum. – (Vetoretten virker. Problemet er feil diagnose i kraftpolitikken). Tækniþróun í orkugeiranum er komin langt. Stóru vindorkuverin verða úrelt innan skamms. Það er komin ný tækni og hver og einn getur sett upp sitt orkubú heima fyrir. Þetta þýðir að stórframkvæmdir við vindorku verða óþarfar, þess í stað þarf að uppfæra það sem þegar er til staðar. Flutningskerfið á Íslandi er sums staðar komið til ára sinna og þetta þaf að laga. Nýjar vatnstúrbínur geta stóraukið orkuframleiðsluna. Það er enginn flokkur á Alþingi í dag sem ber hag náttúrunnar fyrir brjósti. Það verðmætasta sem við eigum. Geymda gullið eru bændurnir. Þeir eru lykillinn að sjálfbærri matframleiðslu. Hér á Íslandi er hægt að rækta nærri hvað sem er bæði undir berum himni og í gróðurhúsum en til þess þurfa bændur jörðina sína. (Orkunotkun sett í samhengi grein í Bændablaðinu 2026 – 3) Ég legg til að orkumálaráðherra geri sér grein fyrir því hverjum hann eigi að þjóna, spari útgjöld við gríðarlega kostnaðarsamar og óafturkræfar framkvæmdir, virði lýðræðislegan rétt þegna landsins og þá sérstaklega landeigenda svo það festist ekki við hann viðurnefnið Míní-Pútín. Ný tækni til að framleiða rafmagn, tengd beint við húskerfið og rafhlöðu. Hægt að selja umframorku til Landsvirkjunar. Höfundur er lýðræðissinni og meðlimur í Landvernd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar