Rósa Björk nýr formaður VG Lovísa Arnardóttir skrifar 8. mars 2026 10:39 Rósa Björk hefur setið á þingi og starfað fyrir VG. Vísir/Vilhelm Rósa Björk Brynjólfsdóttir er nýr formaður Vinstri grænna. Rósa Björk var kjörin með 95 prósent atkvæða samkvæmt tilkynningu. Bjarki Hjörleifsson var kjörinn varaformaður VG með 99 prósent atkvæða
Hlynur Már Ragnheiðarson var einn á móti Rósu Björk í framboði. Ekki kemur fram í tilkynningu hversu mörg atkvæði hann hlaut. Rósa Björk flutti ávarp þegar niðurstaðan lá fyrir. Aðsend Rósa Björk sagði í tilkynningu um framboð sitt í febrúar að flokkurinn stæði á tímamótum. Rósa Björk var kjörin þingmaður flokksins árið 2016 en gekk úr honum og í Samfylkinguna eftir að VG fór í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki og Framsókn árið 2017. Hún gekk svo aftur til liðs við VG árið 2024. Rósa var varaþingmaður flokksins fyrir það og varaþingmaður Samfylkingarinnar 2022 og 2023. Rósa Björk starfaði í fjölmiðlum um árabil en tók við starfi fjölmiðlafulltrúa fjármálaráðherra og fjármálaráðuneytisins 2010 til 2014. Þá starfaði hún sem framkvæmdastjóri þingflokks VG 2015 til 2016. Varaformaður úr Stykkishólmi Bjarki er tveggja barna faðir og stjórnmálafræðingur, ættaður úr Stykkishólmi. Bjarki var aðstoðarmaður Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur þegar hún gegndi embætti matvælaráðherra, þar á undan starfaði hann fyrir þingflokk VG. Vinna mót í vondri pólitík Svandís Svavarsdóttir hélt sína síðustu ræðu sem formaður í gær og sagði þar Samfylkinguna vera að vinna mót í „vondri pólitík“. „Miðjan færist til hægri. Hægrið færist enn lengra í sömu átt,“ sagði Svandís Svavarsdóttir í síðustu ræðu sinni sem formaður Vinstri grænna. Svandís hefur verið formaður frá því í október 2024. Hún fór yfir víðan völl í síðustu ræðu sinni sem formaður en versnandi stöðu heimsins og mikilvægi þess að standa upp fyrir lýðræðinu. Landsfundur Vinstri grænna fer nú fram á Selfossi en þar var í dag kjörin ný stjórn. Nýtt flokksráð verður svo kjörið og teknar fyrir lagabreytingar eftir hádegi.
Vinstri græn Samfylkingin Alþingi Tengdar fréttir Þær skipa efstu sæti lista Vor til vinstri Sanna Magdalena Mörtudóttir skipar fyrsta sæti lista Vors til vinstri í Reykjavík og þar með efsta sæti sameiginlegs lista þeirra með Vinstri grænum sem ber heitið Vinstrið. Með henni á lista eru Ásta Þórdís Skjalddal og Arna Magnea Danks. 7. mars 2026 15:34 Býður sig fram í embætti varaformanns VG Bjarki Hjörleifsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti varaformanns Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á landsfundi hreyfingarinnar sem fram fer á Selfossi 7. til 8. mars næstkomandi. 25. febrúar 2026 10:02 Mest lesið Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Innlent Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Innlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent Stefnir í norðanhríð í vikunni Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Hefur setið tvo af þremur borgarstjórnarfundum frá því að hann skipti um lið Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Bein útsending: ESB-ballið byrjar á Alþingi Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Enginn sem hefur stjórn á því hvar olíuverð endar Bjóða upp á tjaldsvæði inni Tekist á um þjóðaratkvæði á þingi í dag og olíuverð í hæstu hæðum Ætlar ekki að taka úrslitunum sem höfnun Bein útsending: Bjarni og fleiri ræða almannatryggingafrumvarpið Gæsluvarðhald meints barnaníðings framlengt „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Stefnir í norðanhríð í vikunni Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Vilja launað leyfi fyrir þolendur ofbeldis og vernd gegn uppsögn Faldi sig inni í fataskáp þegar lögregluna bar að garði Gildandi kjarasamningar ávísun á áframhaldandi verðbólgu Loks komnar af átakasvæðinu: „Átján tímar af þroti“ Þau skipa lista Samfylkingarinnar, Viðreisnar og óháðra Fyrirhugaðar aðgerðir gegn offitu harðlega gagnrýndar Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slys á Vesturlandsvegi Sunna Hlín leiðir lista Framsóknar áfram „Ákall eftir stjórnmálum sem snúast um umhverfisvernd og mannréttindi“ Skemmdir í Marteinstungukirkju vegna heits vatns „Við hefðum náð meiri árangri með því að vera innan Evrópusambandsins“ Nýr formaður VG og utanríkisráðherra ræðir losunarheimildir Rósa Björk nýr formaður VG Sjá meira
Þær skipa efstu sæti lista Vor til vinstri Sanna Magdalena Mörtudóttir skipar fyrsta sæti lista Vors til vinstri í Reykjavík og þar með efsta sæti sameiginlegs lista þeirra með Vinstri grænum sem ber heitið Vinstrið. Með henni á lista eru Ásta Þórdís Skjalddal og Arna Magnea Danks. 7. mars 2026 15:34
Býður sig fram í embætti varaformanns VG Bjarki Hjörleifsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti varaformanns Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á landsfundi hreyfingarinnar sem fram fer á Selfossi 7. til 8. mars næstkomandi. 25. febrúar 2026 10:02