Menn sem hata konur Guðný S. Bjarnadóttir skrifar 8. mars 2026 09:01 Það er með stolti en líka trega sem ég lít til baka á alla þá baráttu sem konur hafa háð í gegn um tíðina fyrir kvenfrelsi og femínisma. Það er óeigingirni og fórnfýsi kvenna að þakka að við höfum komist nær jafnara samfélagi. Vegna þeirra kvenna sem á undan mér komu hef ég rödd í dag og fyrir það verð ég ævinlega þakklát. Á þeim fjórum árum sem ég hef opinberlega tekið þátt í baráttunni hef ég alltaf orðið jafn reið og vonsvikin þegar ég sé menn tjá sig um femíníska baráttu á hátt sem ekki er hægt að skilja öðruvísi en sem þöggunartilburði. Þessir menn virðast ekki skilja að kynbundið ofbeldi er raunveruleiki, óþægilegur og vondur raunveruleiki, sem þarf að breytast. Við erum væntanlega öll sammála um að við viljum ekki ofbeldi í samfélaginu okkar, í hvaða mynd sem það birtist. Hvers vegna mæta konur þá svona mikilli andstöðu ákveðins hóps karlmanna? Vitað er að öll kyn geta beitt eða verið beitt ofbeldi, eitt útilokar ekki annað. Hins vegar er það staðreynd að ofbeldi karla gegn konum er verulegt vandamál, ekki bara á Íslandi heldur á heimsvísu. Það er hægt að véfengja alla tölfræði, tala femínisma í kaf eða hneykslast á orðræðu kvenna en það breytir ekki veruleikanum sem konur búa við. Við erum alltof margar sem verðum fyrir ofbeldi og þegar við látum í okkur heyra erum við sagðar of reiðar, ekki nægilega kurteisar og jafnvel sakaðar um ofstæki. Barátta kvenna er ekki árás á karla Konur verða að getað tala um sinn veruleika án þess að umræðan sé alltaf afvegaleidd. Staðreyndin er sú að samkvæmt nýjustu tölum um ofbeldi og kynferðisofbeldi gegn konum eru 81% gerenda karlmenn. Þetta er ekki hægt að hunsa. Það er ekki hægt að krefja konur um að tala um ofbeldi án þess að tala um hver beitir því. Ofbeldi er beitt af geranda. Barátta kvenna fyrir öryggi, virðingu og jöfnum réttindum er ekki árás á karla heldur krafa um réttlæti. Þöggun, útúrsnúningar og varnarviðbrögð breyta ekki þeirri staðreynd sem konur sífellt benda á að ofbeldi karla gegn konum er samfélagsmein. Kynbundið ofbeldi er ekki skoðun heldur staðreynd sem krefst heiðarlegrar umræðu og raunverulegra aðgerða. Á meðan við lifum í heimi þar sem eru til menn sem hata konur er ekki í boði að líta undan eða gefast upp. Þú getur valið þögnina eða þú getur valið að horfast í augu við veruleikann og hafnað ofbeldi. Barátta kvenna er neyðaróp. Spurningin er ekki hvort konur megi tala. Spurningin er hvort menn ætli loksins að hlusta. Höfundur er stjórnarformaður Vitundar - samtaka gegn kynbundnu ofbeldi Greinin er skrifuð í tilefni Alþjóðlegs baráttudags kvenna, 8. mars. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðný S. Bjarnadóttir Mannréttindi Jafnréttismál Mest lesið Halldór 08.08.26 Halldór The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Var þetta kosningaloforðið? Fannar Logi Waldorff Sigurðsson skrifar Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem síar fjármuni út úr ríkissjóði bakdyramegin Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar
Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar