Opið bréf til Læknafélags Íslands Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar 6. mars 2026 15:01 Læknafélag Íslands hefur sent frá sér ályktun í tilefni af frumvarpi um tengingu lífeyris almannatrygginga við launavísitölu. Í ályktuninni er þó komið inn á sitt af hverju sem tengist frumvarpinu ekki. Útgangspunktur ályktunarinnar er vægast sagt óljós. Þó er ljóst að með ályktuninni vill Læknafélagið lýsa andstöðu við frumvarpið. Öllum er frjálst að hafa skoðanir á þessu máli eins og öðrum. ÖBÍ þykir þó miður að ályktunin virðist að miklu leyti byggja á vanþekkingu á stöðu örorkulífeyristaka á Íslandi. Enn verra er að aðili á borð við Læknafélag Íslands skuli ekki sýna örorkulífeyritökum meiri virðingu í skrifum sínum en raun ber vitni. Læknafélagið lýsir ítrekað áhyggjum af því að lífeyristakar hafi hvata til að vera sem lengst á örorku og sem minnst á atvinnumarkaði. Orðræða sem þessi lýsir mikilli vanþekkingu á stöðu flestra sem hafa misst starfsgetu sína og þurft að sækja um örorkulífeyri eða endurhæfingu. Ný rannsókn sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir ÖBÍ1 sýnir að örorkulífeyristakar eru meira en tvöfalt líklegri en aðrir til að fresta því að sækja sér þjónustu lækna vegna kostnaðar og að sleppa því að taka lyf af sömu ástæðu. Það hefur enginn hvata til að lifa þannig lífi. Það velur sér enginn að missa starfsorku. Að vera metinn til örorku er heldur ekki neitt sem fólk gengur að sem vísu. Matið er ítarlegt, krefjandi og fyrir mörgum niðurlægjandi ferli. Það er ekki val einstaklinganna sjálfra að vera metin til örorku. Læknafélagið byrjar ályktun sína á að teikna upp mynd af alvarlegri stöðu og skrifar um mikla fjölgun einstaklinga á örorku- og endurhæfingarlífeyri á milli áranna 2020 og 2024. Það er ekki rétt að einstaklingum á örorkulífeyri fari fjölgandi.2 Hlutfallslega hefur örorkulífeyristökum fækkað. Hins vegar hefur orðið hlutfallsleg fjölgun fólks sem sækir sér endurhæfingu vegna slysa og annarra áfalla. Þeim fækkar sem fara á örorku í kjölfar endurhæfingar.3 Það er jákvæð þróun sem er í eðlilegu samhengi við aukna áherslu núverandi og fyrri ríkisstjórna á að hjálpa fólki að endurvinna starfsorku og forðast varanlega örorku. Í ályktun sinni fer Læknafélagið ýmsum orðum um að hætta eigi við þær breytingar á almannatryggingakerfinu sem tóku gildi 1. september 2025. Félagið vísar í því sambandi m.a. til hlutaörorkulífeyris. ÖBÍ fær engan veginn séð hvers vegna ætti að hætta við nýtt örorkulífeyriskerfi hálfu ári eftir að það tók gildi og áður en reynsla er komin á áhrif þess. Kerfið var lengi í smíðum og naut stuðnings nær allra stjórnmálaflokka á þingi. Enn fremur var nýja kerfið sérstaklega gert til að skapa hvata fyrir fólk með skerta starfsgetu til að vera virkt á atvinnumarkaði. ÖBÍ hvetur Læknafélagið til að fylgjast vel með þróun hins nýja kerfis. Þegar næg reynsla verður komin á áhrif þess má gera tillögur um breytingar á því ef nauðsyn krefur. Það hyggst ÖBÍ gera. Þá bendir ÖBÍ á að með frumvarpinu er ekki verið að kollvarpa núverandi fyrirkomulagi hækkana örorkulífeyris almannatrygginga. Sem fyrr segir er aðeins verið að breyta því viðmiði sem notað er til hækkunar. Markmið frumvarpsins er að koma í veg fyrir kjaragliðnun, n.tt. að koma í veg fyrir að kjör elli- og örorkulífeyristaka dragist ár frá ári sífellt meira aftur úr kjörum annarra. Að mati ÖBÍ er um að ræða mikilvægt réttlætismál fyrir það fólk sem verst stendur í samfélaginu. Í ályktuninni fjallar Læknafélagið sitt á hvað um örorkulífeyri almannatrygginga og örorkulífeyri lífeyrissjóða. Það er að mati ÖBÍ er til þess fallið að gerir ályktunina fremur illskiljanlega. ÖBÍ sér því ástæðu til að árétta að frumvarpið fjallar ekki um örorkulífeyri frá lífeyrissjóðum. Frumvarpið fjallar aðeins um með hvaða hætti skuli staðið að hækkunum elli- og örorkulífeyris almannatrygginga. Frumvarpið hefur engin áhrif á örorkulífeyri frá lífeyrissjóðum. Læknafélagið virðist líta það neikvæðum augum að fólk sem fær greiddan örorkulífeyri frá almannatryggingum sem og lífeyrissjóðum sínum geti verið með sambærilegar tekjur og það hafði áður en starfsorka þeirra skertist. ÖBÍ vill benda á að það er þannig sem örorkulífeyrir frá lífeyrissjóðum á að virka samkvæmt samþykktum sjóðanna sem háðar eru samþykki fjármálaráðherra. Með því að borga í lífeyrissjóð á meðan þú hefur starfsorku getur þú tryggt þína fjárhagslegu framtíð ef ske kynni að starfsorka þín skertist, t.d. vegna slysa eða veikinda. Þá fær ÖBÍ ekki séð hvað er ósanngjarnt eða óæskilegt við að fólk geti tryggt sig með þeim hætti. Verra er að þeir sem missa starfsgetuna ungir og hafa lítið eða ekkert greitt í lífeyrissjóð verða að treysta alfarið á greiðslur almannatrygginga. Sá hópur er margfalt stærri en sá sem nær að halda sömu tekjum eftir að starfsorka skerðist. Sem fyrr segir þykir ÖBÍ ályktunin óskýr og framsetning hennar á ýmsan hátt villandi. Meiningar um örorkulífeyristaka eru settar fram án rökstuðnings og hvergi er vísað beint til gagna til stuðnings fullyrðingum. Að mati ÖBÍ verður að gera meiri kröfur til málsmetandi aðila á borð við Læknafélag Íslands sem leggur lóð sín á vogarskál í svo mikilvægu og flóknu máli. Höfundur er formaður ÖBÍ réttindasamtaka. 1 2Hlutfallslega fækkun má sjá með því að bera saman upplýsingar á mælaborði TR og upplýsingar um mannfjölda í sömu aldurhópum á vef Hagstofunnar. Mælaborð TR: https://island.is/s/tryggingastofnun/gagnvirk-toelfraedi-trogTölur um mannfjölda á vefHagstofunnar: https://px.hagstofa.is/pxis/pxweb/is/Ibuar/Ibuar__mannfjoldi__1_yfirlit__Yfirlit_mannfjolda/MAN00101.px/ 3 Þróunsjúkdómsgreininga í læknisvottorðumvegnaendurhæfingarogörorku. Yfirlitsgrein. Læknablaðið 2.tbl. 2026 bls. https://www.laeknabladid.is/rit/2026-02/#page/14 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alma Ýr Ingólfsdóttir Mest lesið Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson Skoðun Halldór 27.06.2026 Halldór Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson Skoðun Skoðun Skoðun Börnin fyrst, en þau bíða enn Steindór Þórarinsson,Jón K. Jacobsen skrifar Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Kannski“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Ábyrgð í orði og verki Lilja Dögg Alfreðsdóttir,Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Stóru verkefnin leysum við saman Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Varúð má ekki verða að forræðishyggju Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Brexit og fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla hér á landi Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher skrifar Skoðun Upplýst umræða og framsal ríkisvalds Margrét Einarsdóttir skrifar Skoðun Skólinn er alltaf vandinn Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Geisp Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Það sem kynslóðir byggðu – og okkar ábyrgð að varðveita Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Handan óttans: Hvers konar Ísland viljum við byggja? Bjarndís Helena Mitchell skrifar Skoðun Lifandi hvalir skapa líka verðmæti Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar Skoðun Hangið frammi á gangi í von um fréttir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Viðreisn gengur í verkin Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Hvernig líður fjölskyldunni? Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Borgarlínan og Línuborg Soria Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Hvaða börn koma fyrst? Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyririnn okkar má ekki týnast Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon Skoðun
Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar
Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon Skoðun