Britney Spears handtekin og í haldi yfir nótt Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. mars 2026 16:13 Britney Spears virðist hafa hegðað sér óvarlega í nótt. Axelle/Bauer-Griffin/FilmMagic Bandaríska poppstjarnan Britney Spears var handtekin í nótt á þjóðvegi í suðurhluta Kaliforníu. Hún var í haldi yfir nótt en sleppt í morgun og hefur verið gert að mæta fyrir dómara 4. maí vegna málsins.
Ekki kemur fram í umfjöllun miðla á borð við BBC og AP fréttastofunnar hvers vegna hún var handtekin. Bandaríski slúðurmiðillinn TMZ fullyrðir hinsvegar að hún hafi verið handtekin vegna gruns um að hún hafi ekið undir áhrifum. Þá fullyrðir miðillinn að lögregla hafi fylgt henni á sjúkrahús, en að hún hafi ekki verið mikið slösuð. Fram kemur í umfjöllun BBC að söngkonan hafi eytt aðgangi sínum að samfélagsmiðlinum Instagram í dag. TMZ hefur eftir Cade Hudson umboðsmanni söngkonunnar að hún iðrist ákaflega vegna handtökunnar í nótt. „Britney mun taka réttu skrefin og fara að lögum og vonandi verður þetta fyrsta skrefið í átt að löngu tímabærri breytingu sem þarf að verða á lífi Britney. Vonandi fær hún þá hjálp og stuðning sem hún þarf á þessum erfiðu tímum,“ hefur miðillinn eftir umboðsmanninum. Hún segir að Britney muni eyða næstu dögum í faðmi fjölskyldu sinnar. Ekki þarf að kynna poppstjörnuna sem á marga af stærstu smellum veraldar á borð við Toxic, Baby One More Time og Womanizer. Hún sagði árið 2024 að hún myndi aldrei snúa aftur í tónlistarbransann en síðasta lag sem hún sendi frá sér var dúett með Elton John árið 2022. Söngkonan var þrettán ár án forræðis yfir sjálfri sér þar sem faðir hennar fór með fjármál hennar og forræði yfir hennar einkalífi. Hún fékk frelsið að nýju árið 2021 og gaf út ævisögu sína árið 2023.
Hollywood Bandaríkin Tengdar fréttir Hætti með Britney í textaskilaboðum Ævisaga Britney Spears kemur út í Bandaríkjunum í dag en í henni fer söngkonan um víðan völl. 24. október 2023 11:24 Britney biður þess að foreldrar sínir brenni í helvíti „Ég segi það hátt og stolt, ég bið þess að þið brennið bæði í helvíti,“ sagði söngkonan Britney Spears í færslu um foreldra sína á Instagram í gær. Britney er dugleg að deila hugsunum sínum með fylgjendum á miðlinum og segir það hjálpa sér andlega. 12. september 2022 17:30 Britney selur réttinn að tónlist sinni fyrir milljarða Poppstjarnan Britney Spears er sögð hafa selt réttinn að allri tónlist sinni til útgefandans Primary Wave sem mun hafa greitt um 200 milljónir Bandaríkjadala fyrir réttinn að tónlist söngkonunnar. Britney, sem meðal annars er þekkt fyrir smellina Oops I did it again, Toxic og Baby one more time, hefur sagst aldrei ætla að snúa aftur í tónlistarbransann, en hún gaf síðast út lag árið 2022 með Elton John. 11. febrúar 2026 07:45 Mest lesið Upplifði létti þegar mamma dó Lífið Ósátt við að vera sett í starfshæfismat af leikhúsinu Lífið Fréttatía vikunnar: Vík burt, hantaveira og Netflix-uppnám Lífið Inga Tinna keypti 342 fermetra höll Lífið Fögnuðu aldarafmæli með pompi og prakt Lífið Ástarsorgin átakanleg en gjöful Tónlist Bakaríið í beinni á Vísi Lífið Jenner segist hafa veikst af Ozempic Lífið Oddvitaáskorunin: Þjóðkirkjan sé tímaskekkja Lífið Lítið kjöt á beinum rándýrsins Gagnrýni Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Reagan mjög miskilinn forseti Oddvitaáskorunin: Þjóðkirkjan sé tímaskekkja Oddvitaáskorunin: Þekktur sem Iceman í Noregi Upplifði létti þegar mamma dó Bakaríið í beinni á Vísi Fréttatía vikunnar: Vík burt, hantaveira og Netflix-uppnám Oddvitaáskorunin: Maturinn þarf að vera fallegur og litríkur Fögnuðu aldarafmæli með pompi og prakt Jenner segist hafa veikst af Ozempic Hundrað ára Attenborough djúpt snortinn Oddvitaáskorunin: Alæta á tónlist Ósátt við að vera sett í starfshæfismat af leikhúsinu Dorrit óskar Farage til hamingju: „Mun gera Bretland stórfenglegt á ný!“ Bonnie Tyler haldið sofandi eftir garnarof Inga Tinna keypti 342 fermetra höll Fögnuðu sjötíu árum og heiðruðu félaga Reyndi við lúmskar Friends-spurningar Leiðir skilja ekki hjá Charlize Theron og Balta Fannst látinn á Mallorca eftir höfuðáverka Ungir skáksnillingar á Laufásborg unnu til verðlauna á EM Oddvitaáskorunin: Fær ekki lengur að velja tónlistina á viðburðum Oddvitaáskorunin: Byrjar settið á tjáningardansi við Euphoria Látlausir kjólar hafa átt sviðið en það er að breytast Með eina þriggja mánaða í vinnunni Oddvitaáskorunin: Erfðagóssið færi frekar til versta óvinar „Mig langaði bara að deyja alla daga“ Fortíðin þvælist ekki fyrir Ara sem gefur í á Tik-Tok Oddvitaáskorunin: Dreymir um skautasvell á torginu Kim tekur sér pásu frá lögfræðinni Tapaði ellefu milljónum Sjá meira
Hætti með Britney í textaskilaboðum Ævisaga Britney Spears kemur út í Bandaríkjunum í dag en í henni fer söngkonan um víðan völl. 24. október 2023 11:24
Britney biður þess að foreldrar sínir brenni í helvíti „Ég segi það hátt og stolt, ég bið þess að þið brennið bæði í helvíti,“ sagði söngkonan Britney Spears í færslu um foreldra sína á Instagram í gær. Britney er dugleg að deila hugsunum sínum með fylgjendum á miðlinum og segir það hjálpa sér andlega. 12. september 2022 17:30
Britney selur réttinn að tónlist sinni fyrir milljarða Poppstjarnan Britney Spears er sögð hafa selt réttinn að allri tónlist sinni til útgefandans Primary Wave sem mun hafa greitt um 200 milljónir Bandaríkjadala fyrir réttinn að tónlist söngkonunnar. Britney, sem meðal annars er þekkt fyrir smellina Oops I did it again, Toxic og Baby one more time, hefur sagst aldrei ætla að snúa aftur í tónlistarbransann, en hún gaf síðast út lag árið 2022 með Elton John. 11. febrúar 2026 07:45