Skref afturábak Helgi Tómasson skrifar 5. mars 2026 15:31 Nú liggja fyrir órar um að leggja um að leggja fasteignamat á raforkumannvirki og að matið eigi síðar að verða skattstofn. Rökin eru á þá leið að það sé réttlætismál að sveitarfélög sem leggja til land undir raforkumannvirki njóti tekna af þeim. Þetta er að mínu mati galin rök og ef menn vilja sáldra meira skattfé yfir sveitarstjórnarmenn þá hljóti að vera til skilvirkari leið. Það virðist stungið upp á því að einhverjir verði fengnir til að meta virði raforkumannvikja, húsa, mastra, lóna stíflna, o.s.frv. Síðan eigi að leggja á þetta fasteignaskatt. Sá skattur hækkar að sjálfsögðu raforkuverð sem að lokum lendir á kaupendum raforkunnar sem reyna sitt besta til að skila hækkunum áfram. Sé vilji til að leyfa sveitarstjórnum að eyða meira fé hljóta að vera til betri leiðir til þess. T.d. mætti leggja skatt á orkuna og ráðstafa þeim tekjum af eigin geðþótta. Matsvirði eigna má aldrei vera skattstofn. Eignaverð flöktir til og frá með illfyrirsjáanlegum hætti. Það er vont fyrir alla. Ekki er gott að hafa flöktandi skattstofn. Almennt gildir að lægri vextir, verðminni peningar, þýðir hærra nafnvirði eigna. Veltuhraði eigna er einnig óheppilegur skattstofn. Í skýrslu samtaka bandarískra fasteignasala er kvartað yfir því að skyndileg vaxtalækkun í covid-faraldrinum hafi hækkað eignaverð og að sú hækkun gangi hægt tilbaka. Þeir tala um að veltuhraði fasteigna hafi minnkað, þ.e. biðin eftir endursölu eignar hafi aukist og það dragi úr tekjum. Í Bandaríkjunum er fullt af gölnum stjórnmálamönnum sem vilja skattleggja ef þeir sjá háar tölur, t.d. söluhagnað fasteigna. Til dæmis telja sumir að söluhagnaður á endursölu fasteigna eigi að mynda skattstofn. Fasteignaeigendur bregðast við þessu með því að hægja á sölu. Tekjur hins opinbera af svona sköttum eru ofmetnar og brenglunin af hindrun á viðskiptum vanmetin. Fasteignamat eru nauðsynlegar upplýsingar til þeirra sem eiga viðskipti með fasteignir. Bankar sem lána út á fasteignir, kaupendur og seljendur þurfa að hafa sem bestar upplýsingar. Fasteignamat ætti því að vera á forræði banka, lánastofnana, fasteignasala og þess háttar hagsmunaaðila. Brunabótamat ætti að vera á forræði tryggingafélaga. Hiðopinbera á ekki að teppa vinnutíma starfsfólks með svona verkefnum. Öðrum ferst það betur úr hendi. Það liggur í hlutarins eðli að mat eigna sem sjaldan skipta um eigendur verður mjög óvisst. Vel þekkt staða eftir kreppur er að viðskipti með dýrar eignir eru enn strjálli og þær hanga uppi með allt of hátt verðmat. Slík möt kalla á brunaútsölur ogþvingaðar sölur. Það blasir við að viðskipti með virkjanir og tengd mannvirki verða strjál. Verðmat á þeim mannvirkjum verður óvisst og gagnslítið. Hugsanlegt er að tryggingafélög geti metið endurstofnverð raforkumannvirkja ef allt fer á versta veg. Eignaskattar eru almennt illkynja. Skattar á rennsli eru miklu betri. Orkuskattinn mætti hugsanlega útfæra á góðkynjaðri máta. Nauðsynlegt er að losa almenning úr fjárkúgunarstöðu einstakra sveitarfélaga og allt of dýru og flóknu leyfisveitingaferli fyrir virkjanir. Höfundur er prófessor emeritus í hagrannsóknum og tölfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helgi Tómasson Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar