Ábending til þjóðaröryggisráðs og ríkisstjórnarinnar Haukur Arnþórsson skrifar 6. mars 2026 07:03 Enginn einn atburður myndi kosta þjóðina meira en nýtt áfall í millilandafluginu. Fátt er eyþjóð mikilvægara en samgöngur – ekki síst flugsamgöngur. Rökstyðja má að þær hafi staðið tæpt í mörg ár. Glannaleg undirboð innlendra aðila hafa ógnað millilandafluginu; minnumst þess að á nokkrum misserum hafa tvö slík félög farið í alls um 150 milljarða gjaldþrot, sem jafngildir um 500 þús./kr. tjóni hvers fullorðins Íslendings. Fyrir þessa upphæð má núna kaupa Icelandair fimm sinnum. Lágu fargjöldin voru blekking og kostuðu gríðarlega mikið. Flug eins og annar rekstur þarf að vera sjálfbær. Þessi stöðuga ógn, þar sem hver óreiðumaðurinn á fætur öðrum hefur verpt í hreiður Icelandair, ógnar öllum helstu atvinnuvegum þjóðarinnar. Enda má segja að sjálfstæði hennar byggist á traustum, eigin samgöngum – eins og taka má Íslandssöguna til vitnis um (og samningamenn Gamla sáttmála skildu). Stjórnvöld aðhafast ekki Opinberir aðilar sem hafa með flug að gera hafa sýnt óreiðumönnunum með undirboðin furðulegt langlundargeð. Ég hef á liðnum misserum skrifað tvær greinar um skyldur opinberra aðila til að grípa inn í og styrkja millilandaflugið. Þá á ég við skyldur þjóðaröryggisráðs, Alþingis, ríkisstjórnarinnar og Samgöngustofu. Nú bætist ný hætta við, sem eru mengunargjöldin. Þau ógna hinum tíðu flugsamgöngum í austur og vestur frá landinu – samgöngum sem halda uppi útflutningi, innflutningi og farþegaflutningi og minnka fjarlægð Íslands mjög verulega frá öðrum löndum. Traust flug er einnig grundvöllur eins mikilvægasta atvinnuvegar þjóðarinnar, ferðaiðnaðarins – og eru þá verslun og iðnaður ónefnd. Og munum að ferðaiðnaðurinn er mannaflsfrekur og hik í millilandafluginu kostar fjöldaatvinnuleysi. Auk annars tjóns sem yrði. Hverjum klukkan glymur Fram undan virðist nýtt efnahagshrun ef ekki verður gripið inn í. Alveg eins og stjórnvöld voru á sínum tíma blind á að hrunið 2008 var fram undan, þá eru þau það líka núna. Jafnvel heyrist frá að öðru leyti ábyrgum aðilum, að „við ættum öll að fljúga minna og menga minna“. En við Íslendingar erum lítið brot af farþegum millilandaflugsins. Það skiptir því ekki öllu máli hvað við gerum, heldur að samkeppnisaðstaða flugsins sé í lagi. Munum að stjórnvöldum áranna fyrir 2008 var kennt um hrunið. Það sama gæti gerst nú. Veik staða nýrra atvinnuvega Gömlu atvinnuvegirnir, landbúnaður og sjávarútvegur, eru inngrónir í stjórnmálaflokkana og stjórnkerfið. Skilningurinn á hagsmunum þeirra er líka hluti af stjórnmálaskoðunum almennings. Nýir atvinnuvegir, þ.e. ferðaiðnaðurinn og millilandaflugið, hafa ekki þessa stöðu, hafa hvorki náð eyrum stjórnmálanna né almennings. Á sama tíma hafa önnur forsjál stórfyrirtæki baktryggt sig. Amgen (Íslensk Erfðagreining) tryggði sig gegn gagnrýni með framlagi í flokkssjóði Sósíalistaflokksins og Samherji með stuðningi við Morgunblaðið. Stjórn Icelandair virðist ekki hafa stundað lobbýisma. Hún gerir þjóðinni og fulltrúum hennar ekki grein fyrir því að velferð og kaupmáttur byggir ekki hvað síst á að félagið njóti eðlilegra samkeppnisskilyrða. Samtök ferðaiðnaðarins eða ferðamálastofa hafa ekki heldur styrkt stöðu millilandaflugsins hjá stjórnvöldum, stjórnmálamönnum og almenningi. Hættan á upplausn Icelandair Í þessu umróti hefur Icelandair tapað og tapað (nálægt samfellt frá Kóvíð) – og raunar er sömu sögu að segja hjá mörgum geirum innlenda ferðaiðnaðarins. Hæsta gengi hlutabréfa Icelandair á tímabilinu varð 2,3 kr./hlut, en er nú um 30% af því. Ef ég man rétt hefur félaginu verið stýrt af sömu stjórn mest allan tímann – þrátt fyrir kröfur erlendra fjárfesta um breytingar á henni. Síðan þeirri breytingu var hafnað hefur gengi hlutabréfa Icelandair farið nær lóðrétt niður á við. Gengi hlutabréfa félagsins hefur nú um nokkurra missera skeið verið svo lágt að ljóst er að upplausnarverð þess er langtum hærra en yfirtökutilboð myndi hljóða upp á og því gæti félagið orðið fórnarlamb siðlausra fjármálamanna sem auðgast með því að slíta félögum og selja eignir þeirra. Ætli nokkur einn atburður myndi kosta Íslendinga meira? Lokorð Málið er mikið stærra en svo að vera á borði eins fyrirtækis. Þjóðaröryggisráð þarf að fjalla um það og sýna þannig ábyrgð gagnvart efnahagslegu öryggi þjóðarinnar og ríkisstjórnin og Alþingi þurfa að gera viðeigandi ráðstafanir. Þær geta þurft að vera margs konar og verður fyrst og fremst að nefna að tryggja eðlilegar samkeppnisaðstæður – jafnvel þótt falla þurfi frá áður gefnum skuldbindingum í mengunarmálum. Þá kæmi til mála að tryggja stöðugleika og aftra upplausnarhættu með því að ríkið kaupi umtalsverðan hlut í Icelandair. Þótt umdeilt sé, tryggja erlendar ríkisstjórnir gjarnan samgöngur með því móti. Millilandaflug er ekki lúxus sem við getum sleppt – það er grundvöllur flestra annarra innviða og starfsemi í nútímaþjóðfélagi, sérstaklega í eyríki. Höfundur er stjórnsýslufræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Haukur Arnþórsson Mest lesið Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson Skoðun Þegar hagsmunir á hundruðum milljarða mæta lýðræðinu Sigurður Sigurðsson Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Europe’s Second Soul Carl Baudenbacher Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé Skoðun Skoðun Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Þegar hagsmunir á hundruðum milljarða mæta lýðræðinu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Europe’s Second Soul Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Kúvending eða ferð til fjár? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hinsegin fólk á vinnumarkaði – Frá tölum til aðgerða Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin er heimskur, síljúgandi siðblindingi Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ein borg, minna kerfi og betri nýting fjármuna Sölvi Breiðfjörð skrifar Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Réttmæt kjörskrárvinnsla Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Látum ekki sumarið koma okkur aftur á óvart í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson skrifar Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun 29. ágúst ‒ Fullveldið endurheimt? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar
Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar