Þór styrkti Kvennaathvarfið og fær að halda pútternum Jakob Bjarnar skrifar 5. mars 2026 10:39 Þór bæjarstjóri áttaði sig á því í kjölfar fréttaflutnings Vísis að hann hafði líklega gerst sekur um gripdeildir, setti sig í samband við Sorpu og lagði andvirði púttersins inn á Kvennaathvarfið. Og fékk að halda pútternum. Vísir/Vilhelm/aðsend Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, hafði samband við Sorpu í gær og gekkst fúslega við því að hafa tekið golfkylfu úr nytjagámi Sorpu eins og fjallað var um á Vísi í fyrradag.
Þór sagði í samtali við þá Loga Bergmann og Jón Júlíus Karlsson, umsjónarmenn golfhlaðvarpsins Seinni níu, hafa tekið golfkylfuna árið 2017, og áætlar að hún hefði kostað um 90.000 krónur ný út úr verslun. Púttaði eins og engill með illa fenginn pútter Að sögn Gunnars Dofra Ólafssonar sviðsstjóra þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu, er ekki heimilt að taka hluti úr nytjagámum Sorpu. Allt nýtilegt fer þaðan í Góða hirðinn þar sem hlutirnir eru seldir. En Þór sagðist hafa sett talsvert meira í gáminn en svo og tók á þeim forsendum glænýjan Odyssey-pútter með góðri samvisku úr golfsetti sem hann fann í gámnum og henti inn í bíl sinn. Þór púttar eins og engill síðan og heldur sig í 22 í forgjöf. Það var hins vegar ekki fyrr en Vísir fjallaði um málið að Þór gerði sér grein fyrir því að þetta væri kannski ekki alveg eins einfalt og hann hugði. Millifærði andvirðið inn á reikning Kvennaathvarfsins Góði hirðirinn, sem er hluti af Sorpu, gefur hagnað af starfsemi sinni til góðra málefna. Sorpa og Þór komust að samkomulagi um að ljúka málinu þannig að Þór fengi að halda kylfunni gegn því að styrkja góðgerðarfélag að eigin vali um andvirði kylfunnar. Úr varð að Þór millifærði krónurnar 90.000 á Kvennaathvarfið, sem nýtur stuðnings endurnotaverslunar Elley á Seltjarnarnesi, sem selur notuð föt. Gunnar Dofri er ánægður með hvernig mál þróuðust.vísir/ívar Gunnar Dofri segir að á næstu mánuðum muni aðgengi viðskiptavina Góða hirðisins að versluninni aukast til muna. „Í vor opnar Góði hirðirinn útibú á endurvinnslustöð Sorpu á Breiðhellu í Hafnarfirði, og samhliða opnun nýrrar endurvinnslustöðvar Sorpu við Lambhagaveg í sumar opnar Góði hirðirinn útibú þar,“ segir Gunnar Dofri og er ánægður með málalyktir. Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sorpu og Þór með kylfuna góðu en bæjarstjórinn sýnir staðfestingu á millifærslunni.aðsend
Golf Seltjarnarnes Sorpa Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira