Sjúkratryggingar Íslands eyðileggja líf fatlaðs barns Thelma Sif Þórarinsdóttir skrifar 5. mars 2026 10:48 Ég hefði aldrei trúað því að stærsta hindrun fatlaðs barns yrði ekki fötlunin sjálf heldur íslenskt velferðarkerfi – það kerfi sem á að standa vörð um réttindi þeirra sem þurfa á mestum stuðningi að halda. En þetta er raunveruleikinn sem fjölskyldan mín lifir á hverjum degi. Ekki vegna skorts á vilja, styrk eða baráttu, heldur vegna síendurtekinna synjana frá Sjúkratryggingum Íslands á hjálpartækjum sem fatlað barn á skýlan rétt á samkvæmt lögum. Lögin segja eitt, reglugerðir SÍ segja annað Í lögum um málefni fatlaðs fólks er skýrt kveðið á um að fatlaðir einstaklingar eigi rétt á hjálpartækjum sem bæta færni þeirra, lífsgæði og sjálfstæði. Þetta eru ekki „umþóttunarverðir kostir“, þetta eru lögbundin réttindi. Sjúkratryggingar Íslands virðast þó starfa eftir öðru regluverki. Reglugerðir þeirra eru svo þröngar að þær samræmast ekki lagarammanum sem þeim ber að fylgja. Í stað þess að stuðla að sveigjanlegri þjónustu, einstaklingsbundnu mati og virðingu fyrir heildarhagsmunum barnsins virðist markmiðið stundum vera að finna leiðir til að segja nei. Hjálpartæki sem breyta lífi barns Barnið mitt þarf tæki sem gerir því kleift að stunda daglegt líf við sambærilegar aðstæður og önnur börn. Þetta eru ekki lúxusvörur. Þetta eru tæki sem gerir barninu kleift að stunda sérkennslu, taka þátt í matmálstímum með samnemendum sínum og líða öruggum. Eitt af þessum hjálpartækjum er bílstóll, sem ætti í raun ekki að flokkast sem hjálpartæki heldur algjört grunnöryggi fyrir öll börn. En samkvæmt umferðarlögum nr. 77/2019 er meðal annars lagagrundvöllur fyrir kröfum um belti, barnabílstóla og öryggi í bílum. Þar kemur fram að börn undir 135 cm í hæð verða að vera í viðeigandi barnabílstól eða stuðningsstól (booster) sem passar við hæð og þyngd barnsins – óháð því hvort barn sé fatlað eða ófatlað. Einnig kemur fram að sektir fyrir vanefndir eru yfirleitt um ISK 30.000 fyrir hvert brot þar sem barnið er ekki rétt fest. En þrátt fyrir faglegar tillögur sérfræðinga, iðju- og sjúkraþjálfara, þrátt fyrir greinargóð læknisvottorð og þrátt fyrir rökstuðning sem stenst öll skilyrði laga fær hann synjun. Synjun á grundvelli þess að tækið „fellur ekki að reglugerð“, reglugerð sem á ekki að hafa meira vægi en lög. Nýverið sat ég fund með Sjúkratryggingum Íslands. Þar var fátt um svör, þögnin var ærandi og mér var hreinlega bent á að sækja um styrk hjá félögum á borð við Oddfellow. Ég varpaði fram spurningunni hvað starfsmenn stofnunarinnar myndu gera ef þetta væri þeirra barn og þau stæðu í mínum sporum. Eðlilega var ég sökuð um ósanngirni í þeirra garð, en hver ber ábyrgð á því ef ég lendi í slysi og barnið mitt er ekki í réttum búnaði í bílnum? Sjúkratryggingar Íslands eru ekki bara að fara eftir reglugerð sem stangast á við lög fatlaðra og almennra umferðarlaga heldur eru þau líka að brjóta á Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna sem segir: Fötluð börn eiga rétt á því að lifa við aðstæður sem gera þeim kleift að lifa eins góðu lífi í samfélaginu og völ er á. Stjórnvöld eiga að fjarlægja hindranir svo öll börn geti orðið sjálfstæð og tekið þátt í samfélaginu með virkum hætti. Hver ber ábyrgð? Þegar stjórnsýslustofnun vinnur eftir reglum sem eru í ósamræmi við lög, þá er það ekki bara mistök, það er kerfislægt réttindabrot. Það eru börn eins og sonur minn sem greiða verðið. Þau missa af lífsgæðum, tækifærum, færni og möguleikum sem þau gætu öðlast ef kerfið sinnti raunverulega því hlutverki sem því er ætlað. Réttur fatlaðs barns ætti aldrei að velta á túlkun starfsmanns eða gamalli reglugerð sem stenst ekki lögfræðilega skoðun. Afleiðingarnar eru raunverulegar Synjun í dag þýðir meiri þjónustuþörf á morgun. Þetta er hvorki skynsamlegt né mannúðlegt. Það er löngu tímabært að SÍ endurskoði reglugerðir sínar, fari eftir lögum og meti umsóknir út frá raunverulegum þörfum einstaklinga, ekki út frá Excel-skjali eða úreldum skilgreiningum. Baráttan heldur áfram Ég skrifa þessa grein ekki aðeins fyrir son minn – heldur fyrir öll börn og einstaklinga sem þurfa að lifa undir sama kerfisvanda. Enginn ætti að þurfa að verja orku í stríð við stofnun sem á að vera bandamaður, ekki mótherji. Höfundur er móðir fatlaðs barns. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Málefni fatlaðs fólks Sjúkratryggingar Heilbrigðismál Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Skoðun Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar