Körfubolti

Líkir ís­lenska körfuboltalandsliðinu við Atlanta Hawks

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sigurkarfan sem Elvar Már Friðriksson skoraði verður lengi í minnum höfð.
Sigurkarfan sem Elvar Már Friðriksson skoraði verður lengi í minnum höfð. vísir/Hulda Margrét

Íslenska körfuboltalandsliðið er með tvo sigra í fyrstu fjórum leikjum sínum í undankeppni heimsmeistaramótsins eftir tvo leiki við Litháa í nýloknum glugga. Ísland er í fjórtánda sæti á nýjasta styrkleikalistanum á heimasíðu FIBA Basketball.

Sigurinn eftirminnilegi á Litháum í Laugardalshöllinni hjálpar íslensku strákunum að fara upp um heil sex sæti á listanum en liðið hoppar yfir þjóðir eins og Ungverjaland, Úkraínu, Portúgal, Tékkland, Holland og Eistland.

„Það er eins og Ísland hafi alltaf endað með fimmtíu prósenta árangur í öllum sínum landsliðsgluggum. Þeir eru eins og Atlanta Hawks-landsliðsgluggarnir, sama hvað gerist, þeir enda alltaf á sléttu. Það er heill Seinfeld-þáttur um þetta hugtak, trúið okkur,“ skrifar pistlahöfundur á heimasíðu FIBA Basketball.

Hann bætti síðan við.

„Allavega, í þessum glugga er það staðfest, þeir náðu stærsta óvænta sigri allra tíma með því að leggja Litháen með flautukörfu. Munurinn á milli þjóðanna tveggja á heimslista FIBA karla voru 36 sæti.“

FIBA Basketball





Það eru lið sem Ísland hefur unnið fyrir ofan strákana okkar á listanum því Ítalir skipa níunda sætið og Litháar eru í ellefta sætinu. Bretar, eina þjóðin sem Ísland hefur ekki unnið í þessari undankeppni, er nú í 24. sætinu.

Það verður örugglega talað lengi um endurkomusigurinn ógurlega á Litháum og hvað þá 19 stiga fjórða leikhlutann og sigurkörfuna hjá Elvari Má Friðrikssyni.

Það er því gaman að sigurinn fær sérfræðinga FIBA Basketball til að fá mun meiri trú á íslenska landsliðinu sem dreymir um að komast á heimsmeistaramót í fyrsta sinn í sögunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×