Ofbeldi er ekki í starfslýsingu félagsráðgjafa Thelma Eyfjörð Jónsdóttir skrifar 4. mars 2026 17:30 Ný könnun Félagsráðgjafafélagsins sýnir að ofbeldi gegn félagsráðgjöfum er kerfislægt, alvarlegt og krefst tafarlausra viðbragða af hálfu vinnustaða og stjórnvalda. Tölurnar tala sínu máli Siðanefnd Félagsráðgjafafélags Íslands gerði nýlega könnun meðal félagsmanna um ofbeldi í starfi. Niðurstöðurnar vekja ugg innan fagstéttarinnar. 86% svarenda hafa orðið fyrir ógnandi framkomu í starfi, 43% hafa fengið hótanir um líkamlegt ofbeldi og 31% hafa fengið hótanir sem beinast að heimili þeirra eða fjölskyldu. Þá hafa 12% orðið fyrir líkamlegu ofbeldi. Aðeins 6,6% segjast aldrei hafa orðið fyrir ofbeldi í starfi. Jafnframt kemur fram að um 75% atvika eru aldrei tilkynnt til lögreglu. Þetta eru því ekki einstök tilvik heldur raunverulegt vinnuumhverfi stórs hluta fagstéttarinnar. „Ofbeldi er ekki í starfslýsingu félagsráðgjafa.“ Lengst af hefur ofbeldi gegn félagsráðgjöfum verið rætt í lokuðum rýmum – á kaffistofum, í handleiðslu eða í trúnaði milli samstarfsfólks. Þagnarskylda og trúnaður við skjólstæðinga eru grunnstoðir félagsráðgjafar og hluti af siðareglum stéttarinnar. Sú varfærni hefur þó einnig haft þá afleiðingu að reynsla af ofbeldi hefur sjaldan ratað út fyrir veggi vinnustaða. Þegar niðurstöður könnunarinnar liggja nú fyrir verður ljóst að um sameiginlega reynslu fagstéttar er að ræða. Þegar 86% svarenda segjast hafa upplifað ógnandi framkomu verður ljóst að hér er ekki um einstaklingsbundna reynslu að ræða heldur kerfislægan vanda í vinnuumhverfi félagsráðgjafa. Alþjóðleg gögn staðfesta alvarleika stöðunnar. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) hafa allt að 38% starfsfólks í heilbrigðis- og velferðarþjónustu orðið fyrir líkamlegu ofbeldi í starfi á ferlinum. Alþjóðavinnumálastofnunin (ILO) hefur jafnframt bent á að félags- og heilbrigðisþjónusta sé meðal áhættumestu starfsgreina þegar kemur að vinnustaðaofbeldi og að stór hluti atvika sé aldrei tilkynntur. Íslensku tölurnar staðfesta því ekki aðeins reynslu stéttarinnar heldur endurspegla alþjóðlega þróun. Ofbeldi er vinnuumhverfisvandi Rannsóknir á vinnuumhverfi sýna að endurtekin upplifun af ógn og ofbeldi hefur víðtæk áhrif á líðan starfsfólks. Samkvæmt svokölluðu Job Demands–Resources líkani eykst hætta á kulnun þegar kröfur starfsins eru miklar en stuðningur og úrræði ófullnægjandi. Ofbeldi og hótanir eru ekki aðeins líkamlegar áskoranir heldur einnig tilfinningalegar og siðferðilegar kröfur sem geta haft langvarandi áhrif á starfsfólk. Ef viðbrögð vinnustaðar eru óljós, stuðningur takmarkaður eða mönnun ófullnægjandi eykst hætta á kulnun verulega. Slíkt getur haft keðjuverkandi áhrif: þegar félagsráðgjöfum fækkar eykst álag á þá sem eftir standa og áhætta á kulnun magnast enn frekar. Sérstaklega vekur athygli að í könnuninni kemur fram að hótanir beinast í sumum tilvikum að heimilum félagsráðgjafa og fjölskyldum þeirra. Þegar skjólstæðingar koma á heimili starfsmanna eða fjölskyldumeðlimir verða fyrir ógn er ljóst að ofbeldið hefur farið út fyrir vinnustaðinn. „Ótti og streita eiga ekki að fylgja félagsráðgjöfum heim.“ Ábyrgðin liggur hjá kerfinu Þjálfun í samskiptum og fyrirbyggjandi aðferðir geta dregið úr áhættu en duga ekki einar og sér. Ef kerfið tryggir ekki skýra verkferla, raunverulega eftirfylgni og nægilega mönnun er ábyrgðin í raun lögð á herðar einstakra starfsmanna.Vinnuveitendur bera lagalega skyldu til að tryggja öruggt vinnuumhverfi. Þegar 75% ofbeldisatvika eru ekki tilkynnt er tilefni til að spyrja hvort núverandi kerfi tryggi nægilega vernd starfsfólks.Félagsráðgjafar sinna einu mikilvægasta hlutverki samfélagsins: að styðja fólk í erfiðustu aðstæðum lífsins. Það er því ekki til of mikils mælst að þeir geti sinnt því starfi án þess að búa við ógn eða ofbeldi. Samfélag sem vill öfluga velferðarþjónustu verður að tryggja að fagfólkið sem þar starfar búi við öryggi.Þegar dóttir mín sagði nýlega að hún ætlaði að verða félagsráðgjafi eins og mamma fann ég bæði fyrir stolti og kvíða. Félagsráðgjöf er eitt mikilvægasta starf í samfélaginu og forréttindi að starfa á þessum vettvangi. En ef við viljum að næsta kynslóð félagsráðgjafa velji sér starf á þessum vettvangi verðum við einnig að tryggja að starfsumhverfið sé öruggt.Staðreyndirnar liggja fyrir. Ofbeldi gegn félagsráðgjöfum er raunverulegt og útbreitt. Nú er komið að því að tryggja að öryggi fagfólks verði sjálfsagður hluti af velferðarkerfinu – ekki undantekning.F.h. Siðanefndar Félagsráðgjafafélags ÍslandsThelma Eyfjörð Jónsdóttir, félagsráðgjafi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ofbeldi á vinnustað Mest lesið Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar