Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Hólmfríður Gísladóttir skrifar 4. mars 2026 14:50 Bandaríski flugherinn hefur aðstöðu í Tyrklandi en ekki er vitað hvort hún var skotmark eldflaugarinnar frá Íran. Getty/Mustafa Hatipoglu Tyrkneska varnarmálaráðuneytið greindi frá því fyrr í dag að varnarkerfi Atlantshafsbandalagsins hefðu skotið niður eldflaug sem skotið var frá Íran og var á leið inn í lofthelgi Tyrklands. Sérfræðingur í varnarmálum segir líklega meira þurfa til að 5. grein Atlantshafssáttmálans verði virkjuð og að Ísland dragist inn í þau átök sem nú standa yfir.
Íranir hafa gert árásir á fjölda herstöðva og sendiráða Bandaríkjanna í kjölfar þess að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir sínar um helgina. Meðal þeirra herstöðva sem hýsa umfangsmikinn mannafla frá Bandaríkjunum er Incirlik-herstöðin í Tyrklandi en Tyrkir hafa sagt að þeir muni ekki heimila að lofthelgi þeirra verði notuð til árása gegn Íran. Samkvæmt New York Times liggur ekki fyrir hvert skotmark eldflaugarinnar frá Íran var en leifar af skotfærunum sem skutu flaugina niður lentu í héraðinu Hatay, sem liggur nærri landamærunum að Sýrlandi. Tyrkland deilir 482 kílómetra löngum landamærum með Íran en er aðildarríki að Atlantshafsbandalaginu og því vekur atvikið spurningar um möguleikann á því að önnur aðildarríki Nató dragist inn í átökin sem nú standa yfir í Mið-Austurlöndum. Allison Hart, talsmaður Nató, sagði í yfirlýsingu að bandalagið fordæmdi árásir Íran á Tyrkland. Varnir þess væru styrkar, þar með taldar loft- og eldflaugavarnir. Tyrkir hafa sjálfir sagt að þeir muni ráða ráðum sínum við bandamenn sína innan Nató og grípa til allra nauðsynlegra ráða til að vernda landið. Samkvæmt 5. grein Atlantshafssáttmálans eru öll aðildarríki Nató skuldbundin til að koma bandalagsríki til varnar ef ráðist er á það og það biður um aðstoð. Hins vegar er ekki kveðið á um það nákvæmlega hvað telst árás. Íranir hafa þegar gert árásir á herstöð Breta á Kýpur. Bretar tilheyra Nató en Kýpur ekki. Fréttastofa leitaði álits hjá Bjarna Má Magnússyni, sérfræðingi í alþjóðalögum, sem sagðist telja ólíklegt að Ísland, sem aðildarríki Nató, myndi dragast inn í stríð gegn Íran nema eitthvað meira kæmi til. „Ég tel mjög ólíklegt að Nató verði dregið inn í þetta nema eitthvað meiriháttar gerist,“ segir hann. Bjarni bendir á að 5. greinin hafi aðeins einu sinni verið virkjuð; í kjölfar árásanna 11. september 2001.
Tyrkland Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Ísrael NATO Öryggis- og varnarmál Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Tómas kominn aftur til starfa Innlent Fleiri fréttir Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Sjá meira