Ómetanlegt að hafa sagt frá átröskuninni Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 4. mars 2026 16:02 Leikkonan Lily Collins hefur í gegnum tíðina rætt opinskátt um átröskun. Pascal Le Segretain/Getty Images „Þetta er eitt það erfiðasta sem ég hef gert en á sama tíma það sem hefur verið hvað mest gefandi,“ segir Hollywood leikkonan Lily Collins um það að ræða opinskátt um átröskun. Nú eru liðin tíu ár frá því að þessi Emily in Paris stjarna ræddi fyrst opinberlega um veikindi sín og hún segist aldrei sjá eftir því að hafa opnað umræðuna. „Ég hef alltaf verið stuðningsmaður þess að vekja athygli á hættum átröskunar og opna umræðuna svo að fólk geti skilið aðstæður þeirra sem glíma við sjúkdóminn, svo enginn þurfi að þjást í þögn eða skömm.“ Átröskun er samheiti yfir nokkra geðsjúkdóma sem lýsa sér í miklum röskunum á matarneyslu og eigin sjálfsmynd. Átraskanir hafa oft mjög alvarlegar líkamlegar afleiðingar og geta jafnvel leitt til dauða. Sálrænu áhrifin eru þó ekki síðri, þar sem sjúklingar þjást gjarnan af miklum kvíða, þunglyndi og brenglaðri sjálfsmynd. Á áttavitinn.is er hægt að lesa meira um átraskanir og hvernig hægt er að leita hjálpar. Collins er 36 ára gömul og fór með aðalhlutverk í átakanlegu kvikmyndinni To The Bone árið 2017 þar sem hún leikur konu sem glímir við anorexíu. Hún er sömuleiðis dugleg að vekja athygli á samtökunum National Eating Disorders Association sem hún segir bjarga lífum daglega. Lily Collins opnaði sig fyrst um átröskun fyrir tíu árum.Getty Collins segir að það hafi ekki einungis hjálpað sér sjálfri að ræða opinskátt um eigin veikindi heldur líka öðrum í svipuðum aðstæðum. „Bataferlið er ólíkt fyrir hvern og einn og þetta er ferli sem er stöðugt í gangi. Með hjálp fagaðila hef ég náð miklum bata og náð að tengja við aðra sem eru að ganga í gegnum svipaðar aðstæður. Þannig verður maður minna einn í þessu. Að tala opinskátt um mína átröskunarsögu var og er eitt af því erfiðasta en á sama tíma mest gefandi sem ég hef gert í lífinu,“ segir Collins og bætir við: „Ef það hjálpar þó það sé ekki nema einhverjum einum þegar ég ræði um þetta þá er það algjörlega ómetanlegt.“ Geðheilbrigði Hollywood Mest lesið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Lífið Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Lífið Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Lífið Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Lífið Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Tónlist Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Lífið Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Lífið Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Tónlist „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Lífið Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Sjá meira
„Ég hef alltaf verið stuðningsmaður þess að vekja athygli á hættum átröskunar og opna umræðuna svo að fólk geti skilið aðstæður þeirra sem glíma við sjúkdóminn, svo enginn þurfi að þjást í þögn eða skömm.“ Átröskun er samheiti yfir nokkra geðsjúkdóma sem lýsa sér í miklum röskunum á matarneyslu og eigin sjálfsmynd. Átraskanir hafa oft mjög alvarlegar líkamlegar afleiðingar og geta jafnvel leitt til dauða. Sálrænu áhrifin eru þó ekki síðri, þar sem sjúklingar þjást gjarnan af miklum kvíða, þunglyndi og brenglaðri sjálfsmynd. Á áttavitinn.is er hægt að lesa meira um átraskanir og hvernig hægt er að leita hjálpar. Collins er 36 ára gömul og fór með aðalhlutverk í átakanlegu kvikmyndinni To The Bone árið 2017 þar sem hún leikur konu sem glímir við anorexíu. Hún er sömuleiðis dugleg að vekja athygli á samtökunum National Eating Disorders Association sem hún segir bjarga lífum daglega. Lily Collins opnaði sig fyrst um átröskun fyrir tíu árum.Getty Collins segir að það hafi ekki einungis hjálpað sér sjálfri að ræða opinskátt um eigin veikindi heldur líka öðrum í svipuðum aðstæðum. „Bataferlið er ólíkt fyrir hvern og einn og þetta er ferli sem er stöðugt í gangi. Með hjálp fagaðila hef ég náð miklum bata og náð að tengja við aðra sem eru að ganga í gegnum svipaðar aðstæður. Þannig verður maður minna einn í þessu. Að tala opinskátt um mína átröskunarsögu var og er eitt af því erfiðasta en á sama tíma mest gefandi sem ég hef gert í lífinu,“ segir Collins og bætir við: „Ef það hjálpar þó það sé ekki nema einhverjum einum þegar ég ræði um þetta þá er það algjörlega ómetanlegt.“
Átröskun er samheiti yfir nokkra geðsjúkdóma sem lýsa sér í miklum röskunum á matarneyslu og eigin sjálfsmynd. Átraskanir hafa oft mjög alvarlegar líkamlegar afleiðingar og geta jafnvel leitt til dauða. Sálrænu áhrifin eru þó ekki síðri, þar sem sjúklingar þjást gjarnan af miklum kvíða, þunglyndi og brenglaðri sjálfsmynd. Á áttavitinn.is er hægt að lesa meira um átraskanir og hvernig hægt er að leita hjálpar.
Geðheilbrigði Hollywood Mest lesið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Lífið Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Lífið Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Lífið Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Lífið Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Tónlist Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Lífið Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Lífið Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Tónlist „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Lífið Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Sjá meira