„Mér finnst við eiga mikið inni“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. mars 2026 13:00 Elín Klara mætir vel stemmd til leiks gegn Svartfjallalandi í kvöld. vísir / bjarni Landsliðskonan Elín Klara Þorkelsdóttir hefur slegið í gegn á sínu fyrsta tímabili með sænska liðinu Savehof.
Elín er markahæsti leikmaður Savehof á tímabilinu og fjórði markahæsti leikmaður deildarinnar, þar sem liðið trónir á toppnum. „Við tryggðum okkur deildarmeistaratitilinn í síðasta leik, þannig að það er komið þó við eigum þrjá leiki eftir í deildinni. Það hefur gengið mjög vel eftir áramót hjá okkur“ sagði Elín. Klippa: Elín Klara markahæst hjá sænska toppliðinu Hún er hins vegar hógvær og vildi ekki gera mikið úr sínum þætti í velgengninni. „Við erum bara með mjög sterkt lið. Þetta er ekki einstaklingsíþrótt, þetta er liðsíþrótt. Við erum með svolítið nýtt lið í Savehof en erum að finna hvorar aðrar enn betur og betur.“ Þessa stundina er Elín þó með hugann við landsliðsverkefnið en hún verður í eldlínunni þegar Ísland mætir Svartfjallalandi í kvöld og á sunnudag. Elín sagðist ánægð með að koma aftur heim og hitta stelpurnar. Þær væru staðráðnar í að sýna betri frammistöðu en í síðasta leik gegn Svartfjallalandi. „Við tókum góðan fund í gær og skoðuðum þann leik aðeins. Mér finnst við eiga mikið inni. Við hefðum getað verið mun grófari og fastari fyrir varnarlega. Það er eitthvað sem við þurfum að gera á móti svona liði. Þær eru stórar og sterkar þannig að það er virkilega mikilvægt að við spilum á okkar styrkleikum og keyrum á þær.“
Sænski handboltinn Landslið kvenna í handbolta EM kvenna í handbolta 2026 Mest lesið Harry Maguire sakfelldur í Grikklandi Enski boltinn Svona virkar nýja rangstöðuregla Wengers Enski boltinn Þema í tapleikjum Liverpool á þessu ári Enski boltinn Keppir á Steraleikunum en ætlar líka á næstu Ólympíuleika Sport Vilja lífstíðarbann fyrir þjálfara sem tók upp kvenkyns leikmenn í laumi Fótbolti Saga Elvars er ótrúleg Sport Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Íslenski boltinn Trump: „Mér er alveg sama hvort Íran tekur þátt í HM“ Fótbolti Gagnrýndi Arsenal fyrir leik liðanna í kvöld Enski boltinn Segir fulla innistæðu fyrir reiði Slot við leikmenn Enski boltinn Fleiri fréttir Ísland - Svartfjallaland | Geta hefnt fyrir tapið á HM Norðmenn skipta út landsliðsþjálfaranum sínum „Mér finnst við eiga mikið inni“ Átta ára hark á enda „Við ætlum að spóla upp þessa brekku“ Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Einar Bragi öflugur í mikilvægum Evrópusigri Elliði í liði umferðarinnar eftir mörkin níu gegn Kiel Fleiri breytingar á landsliðinu: Alexandra kemur inn fyrir Ölfu „Leiðinleg tímasetning á þessum meiðslum“ Sigurinn dæmdur af Hauki og félögum því undirskrift vantaði Sonja Lind inn í hópinn fyrir barnshafandi Þóreyju Önnu Skellur fyrir bankabók HSÍ Frábær frammistaða Hauks dugði skammt Sigur hjá Ými en dýrt tap hjá Blæ Sigvaldi á leið í faðm Guðjóns Vals eða Heiðmars? Myndasyrpa: Haukar fögnuðu á heimavelli „Þetta er súrrealísk tilfinning“ „Fyrst og fremst stoltur af leikmönnum liðsins“ „Rætt á fyrsta fundi að stefnt væri að titlum“ Elliði markahæstur í frábærum sigri Uppgjörið: Haukar - ÍR 28-21 | Haukar of stór biti fyrir ÍR Flautumark tryggði Íslendingaliðinu sigur „Með þessa sigurhefð sem við þurfum að búa til“ „Algjör rússibani“ Haukar - Valur 19-23 | Valskonur bikarmeistarar ÍR-ingar kalla á hetju bikarúrslitaleiksins fyrir þrettán árum „Ég ætla ekki að bera ábyrgð á því“ Segir Guðjón Val besta þjálfara heims Bjarni Fritzson: „Svoleiðis eru sigurvegarar, þeir vilja bara vinna leikinn“ Sjá meira