Bíó og sjónvarp

Fyrir­sætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Annabel Schofield átti farsælan feril sem fyrirsæta og tók síðan stökkið yfir til Hollywood.
Annabel Schofield átti farsælan feril sem fyrirsæta og tók síðan stökkið yfir til Hollywood. Getty

Velska fyrirsætan, leikkonan og leikstjórinn Annabel Schofield er látin, 62 ára að aldri, eftir baráttu við krabbamein í heila. Schofield er þekktust fyrir að hafa leikið Laurel Ellis í elleftu seríu af hinum geysivinsælu Dallas.

Dægurmálamiðillinn The Hollywood Reporter greindi frá andláti Schofield en hún lést í Los Angeles 28. febrúar. Í aðdraganda andlátsins hafði leikkonan stofnað GoFundMe-síðu til að borga fyrir krabbameinsmeðferðina og uppfært aðdáendur sína um stöðu mála.

Schofield lék Laurel Ellis í sjónvarpsþáttunum Dallas.Getty

Annabel Schofield fæddist 4. september 1963 í bænum Llanelli í Wales. Faðir hennar var breski kvikmyndaframleiðandinn John D. Schofield, sem kom meðal annars að gerð The Naked Gun: From the Files of Police Squad! (1988) Jerry Maguire (1996) og As Good As It Gets (1996).

Schofield flutti ung að árum til Lundúna þar sem hún reyndi fyrir sér í módelbransanum. Það reyndist upphafið að löngum fyrirsætuferli þar sem hún sat fyrir í fjölda tískutímarita, þar á meðal á forsíðum þýsku og ítölsku útgáfanna af Vogue og fjölda tísku- og snyrtivöruherferða, þar á meðal fyrir Yves Saint Laurent, Versace, Rimmel, og Revlon. 

Leikur hennar í auglýsingu fyrir fatamerkið Bugle Boy Jeans árið 1988 vakti sérstaka athygli en þar sagði hún hina frægu línu: „Afsakaðu mig, eru þetta Bugle Boy jeans-buxur sem þú ert í?“

Þegar fyrirsætuferill hennar stóð hvað hæst flutti Schofield til Los Angeles og fékk hlutverk í hinum ofurvinsælu Dallas. Þar lék hún karakterinn Laurel Ellis á móti JR Ewing (Hagman) í elleftu þáttaröðinni sem var sýnd 1988. Leikferill hennar eftir það var ekki sérlega langur, hún lék í átta kvikmyndum en vann þó bak við tjöldin í myndum á borð við Doom (2005), City of Ember (2008) og The Brothers Grimm (2005) og leikstýrði sjálf myndinni Flash! (2003)

Seinni hluta ferilsins stofnaði hún sitt eigið framleiðslufyrirtækið Bella Bene Productions og gaf síðan út skáldsöguna The Cherry Alignment árið 2013 sem hún byggði á reynslu sinni sem fyrirsæta. Annabel lætur eftir sig móðurina Rochelle Schofield.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.