Formúla 1

Hamilton skýtur fast á and­stæðinga sína

Aron Guðmundsson skrifar
Lewis Hamilton átti erfitt uppdráttar á sínu fyrsta tímabili hjá Formúlu 1 liði Ferrari en nær hann að slá frá sér á komandi tímabili?
Lewis Hamilton átti erfitt uppdráttar á sínu fyrsta tímabili hjá Formúlu 1 liði Ferrari en nær hann að slá frá sér á komandi tímabili? Vísir/Getty

Lewis Hamilton, sjöfaldur heimsmeistari ökuþóra í Formúlu 1 heldur nú inn í sitt tuttugasta tímabil í mótaröðinni og í færslu á samfélagsmiðlum í dag lítur hann yfir farinn veg og þakkar þeim sem efuðust um hann og reyndu að slá niður.

„Tuttugu ár af ótrúlegum hæðum og hrottalegum lægðum. Fleiri mistök en ég get talið en þessi mistök gerðu þessa vegferð enn sætari. Þú heldur á lyklinum að örlögum þínum. Allt sem þú þarft til þess að skara fram úr býr innra með þér,“ skrifar Hamilton í færslu á samfélagsmiðlum.

Hann er á leið inn í sitt tuttugasta tímabil í Formúlu 1 sem hefst um komandi helgi í Albert Park í Melbourne þegar að tímabilið 2026 í Formúlu 1 hefst. Hamilton er á sínu öðru tímabili sem ökuþór Ferrari og eftir fremur erfitt fyrsta tímabil hjá liðinu goðsagnakennda vonast hann til þess að gera mun betur í ár.

Hamilton er sá ökuþór, ásamt Michael Schumacher, sem hefur unnið felsta heimsmeistaratitla ökuþóra í mótaröðinni. Alls eru heimsmeistaratitlarnir sjö talsins.

Bretinn varð fjörutíu og eins árs fyrr á árinu og er stóra spurningin sú hvort hann hafi það enn í sér að berjast um heimsmeistaratitil og hvort hann fái í því verkefni bíl sem getur keppt um sigur.

Hamilton er þakklátur fyrir allar lexíurnar sem hann hefur lært á þessum tuttugu árum sínum í Formúlu 1. Þakklátur fyrir rólegum tímana en einnig þá viðburðaríku sem og fólkið sem hefur hjálpað honum á leiðinni.

„Ég er þakklátur fyrir efasemdamennina og þá sem reyndu að slá mig niður. Ég er enn hér. Tuttugu árum síðar. Enn standandi. Enn hungraður og einbeittur á draum minn. Ég held ekki aftur að mér.“

Sýn Sport Viaplay er heimili Formúlu 1 á Íslandi. Bein útsending frá öllum keppnishelgum tímabilsins fer fram á stöðinni og eru það Pittsbræðurnir Bragi Þórðarson og Kristján Einar Kristjánsson sem lýsa herlegheitunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×